Matarspjall
Nokkur orð um ... eggjasuðu
Ég hélt að það væri ekki vandi að sjóða egg.
En það sannar nú bara hvað ég er fáfróð, eða kannski öllu heldur hvað ég er stálheppin að vera ekki ameríkani, því þá mundi ég örugglega aldrei nenna að gera neitt sem kallar á harðsoðin egg.
Ég las einu sinni á netinu ritdóm eftir Irene Sax hjá Gourmet/Bon Appétit um nýjustu matreiðslubók hinnar kunnu kalifornísku matreiðslukonu Alice Waters, sem hún hrósar í hástert og segir að þegar hún lokaði bókinni var ein uppskrift sem hún gat ekki hætt að hugsa um, af því að hún var svo frábærlega einföld og snjöll, og það var uppskriftin að harðsoðnum eggjum: Maður tekur fersk egg, setur þau í sjóðandi vatn, sýður þau í 9 mínútur, snöggkælir þau í ísköldu vatni, slær eggjunum utan í til að sprengja skurnina, setur þau aftur í kalda vatnið og plokkar skurnina af þeim.
Bíddu nú við, hugsaði ég, er ég að missa af einhverju hérna? Er til einhver önnur aðferð til að harðsjóða egg? Af hverju er konan svona hrifin?
Ég spurði góðkunningja mína hjá Gail´s Recipe Swap og kom af stað miklum umræðum, sem urðu til þess að leiða mér fyrir sjónir að það eru til ófáar aðferðir til að harðsjóða egg, allar mun flóknari og tímafrekari en þessi. Mér var bent á að ekki væri ólíklegt að ritdómarinn hefði fram að þessu notað aðferð eldhúsgyðjunnar miklu, Juliu Child, sem hún lýsir í matargerðarbiblíunni The Way to Cook og er svona, í mjög styttri útgáfu:
1) Maður stingur gat á breiðari endann á egginu.
2) Maður setur það í kalt vatn, sem á að fljóta eina tommu yfir það.
3) Maður hitar vatnið að suðu.
4) Maður tekur pottinn af hitanum þegar sýður og setur lok á hann.
5) Maður lætur pottinn standa í nákvæmlega 17 mínútur.
6) Maður setur eggið í ísvatn í nákvæmlega 2 mínútur
7) Maður setur eggið aftur í sjóðandi vatn í 10 sekúndur.
8) Maður setur það strax aftur í ísvatnið.
9) Maður hristir pottinn til að sprengja skurnina.
10) Maður lætur eggin liggja í ísvatninu í 20 mínútur.
11) Maður plokkar skurnina af undir rennandi vatni.
Nú skildi ég loksins hvers vegna ritdómaranum fannst hin aðferðin yndislega einföld.
En bíðið við: Hálfu ári síðar spyr einn af fastagestunum á Gail´s Recipe Swap: ,,Hvernig var aftur aðferðin hennar Nönnu við að sjóða egg?"
Alþjóðleg frægð mín byggist sem sagt fyrst og fremst á aðferðum mínum við eggjasuðu.


Skrifa athugasemd