Matarspjall

bocusedor

Annar Pistill Dominique frá Bocuse D'Or

Lyon

23 jan. 2007

Nú rignir í Lyon og á eftir að snjóa og ekki batnar umferðina við það. Leiðin á sýninguna er ekki ýkja löng og ætti ekki að taka nema 20-25 mín. En bilstjórinn gat lesið blaðið sitt, sungið og spjallað við sjálfan sig á þessum 1 1/2 klst. sem ferðin tók. Sýningin er gríðalega stór og greinilega margir skólar og margir fagmenn (matvælabúðir eru margar lokaðar á mánudögum) á svæðinu. Keppnir eru byrjaðar og það verður að segja að þeim fylgir fjör og spenna, og umgjörðin er sérstaklega flott, míkil reynsla hér í þágu fagmanna. Ostakeppninni lauk í gær og franskur ostasérfræðingur vann hana, fast á eftir var sá belgíski og sá ítalski varð þriðji. Þegar kemur að velja, skera, framreiða osta með AOC upprunavottorð, verða sjálfsagt löndin sem framleiða mest af þeim fremst í röðinni. Fyrsta heimskeppni bakarameistara var einnig haldin og þar fengum við að sjá listaverk, úr tveimum baguette og fleiri brauð sem skylda var að nota. Danirnir náðu að mynda litlu hafmeyjuna og sjóinn á afar myndrænan hátt, en Ítalir unnu þar, Svíss var í annað sæti og Frakkland í því þriðja. Í dag var svo önnur umferð í Kökumeistarakeppni, sem er ótrúlegt listrænt sjónarspil og að öllu leyti glæsileg keppni. Þar kepptu nokkur lönd frá Asíu því undankeppni var haldin í Singapore, og það má segja að Suður Korea átti salinn - trommur og hljóðfæri sem er forsmekkur fyrir okkur af því sem koma skal á morgun og miðvikudaginn. Ástralía var þar í fyrsta skipti en það fór hljótt um aðhangandahóp þeirra: þegar kynnirinn bað þá um að koma fram, var ein kona sem lyfti höndina - og mér sýnist hún frekar vera að veifa þýska kökumeistarann sem var á sínum bás beint á móti!! En hvað sem verður, vor þetta hrein unun og konfekt fyrir augað og trúlega gómsætt fyrir dómarana líka. Úrslit eru enn ókunn þar sem þau birtust eftir að sýningunni lauk. En Koreumenn lögðu mikið í spilin og hvernig sem endar hafa komið fram sem afar áhaguverðir í matar- og kökugerð. Hvenær ætla strákarnir okkar að taka þátt þar? Þeir eru fullgildir sýnnist mér! Kvöldið verður með ýmsu móti hjá okkur öllum, farið á besta eða næst besta staðina í bæinn - hér mórar af Norðmönnum (okkur hefur sagt að þeir væru 2000 - hræðsluáróður?), Ítölum og Spánverjum en við gerum pláss fyrir okkur. Eins og ávallt. Dominique, Lyon

 

Skrifa athugasemd

 

Innskráning



Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði