Matarspjall

winecellar

Vínkjallari ráðhússins í París boðinn upp

11 jan. 2007

Það þarf engan snilling til að segja manni að borgarstjóri Parísarborgar eigi góðan vínkjallara. En svo er ekki lengur.

Á valdatíð Jaques Chirac, 1977-1995, tókst honum að safna saman rúmum 5000 flöskum sem voru boðnar upp, seint á nýliðnu ári. Áætlað uppboðsverðmæti þessa safns var u.þ.b. $ 700.000 eða rúmar 50 mil. krónur. Í safninu voru, eins og ætla mætti, mikið af perlum og var þar að finna nokkur af dýrustu vínum sem framleidd eru s.s. Chateaux Cheval Blanc, Haut Brion, Lafite Rothschild, Margaux, Mouton Rothschild, Petrus, Domaine de la Romanee Conti og Krug. Samtals seldist þetta lítilláta safn á “litlar” 1.2 milljón dollara sem nemur u.þ.b. 86 mil. Króna.

 

Skrifa athugasemd

 
 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði