Matarspjall

Súkkulaðiskortur í vændum

27 júl. 2006

Nú er illt í efni. Það kvað verða útlit fyrir súkkulaðiskort á næstu árum. Tveir ólíkir plöntusjúkdómar hafa lagst á kakóbaunarunna í Suður- og Mið-Ameríku að undanförnu og þegar hefur dregið úr kakóbaunaframleiðslu um 20% (á heimsvísu). Ef annarhvor sjúkdómurinn eða báðir berast til Afríku (Fílabeinsströndin er mesta kakóræktunarland heimsins), þá er voðinn vís.

Sumir vilja bregðast við með því að rækta fram erfðabreyttar kakóbaunir sem eru síður næmar fyrir þessum sjúkdómum en gegn því er þó mikil andstaða. Allavega gæti farið svo að gæðasúkkulaði yrði enn meiri lúxusvara en nú er.

Nanna

 

 

Athugasemdir: (3)

  1. Íris sagði:

    Ég dey.....

    15.08.2006 9:22 #

  2. Dúddi pornodog sagði:

    óó...ég verð að bjarga chokkolateinu...eða ég nauðga þessum plöntusjúkdóm...KK. Dúddi pornodog

    10.10.2006 13:49 #

  3. Súkki... sagði:

    !! og hvað á ég þá að borða ??? !!!

    15.11.2006 17:28 #

Skrifa athugasemd

 
 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði