Matarspjall
Bannárin í Chicago
Það er vandlifað í Chicago. Þar má ekkert lengur. Látum vera þótt varla nokkurs staðar megi reykja (ég styð það reyndar) eða tala í farsíma á meðan maður keyrir. En að setja reglur um að það megi ekki nota nema einhverjar voða heilsusamlegar olíur (eða þannig) til að djúpsteikja mat þykir mér fulllangt gengið. Og að banna gæsalifrarkæfu ... nei, hættið nú.
Næst banna þeir örugglega hrossakjöt eins og er búið að gera í Kaliforníu.
Nanna


Athugasemdir: (1)
Gunna sagði:
Vissir þú hvernig þeir fara með gæsina til að lifrin verði sem stærst ? Tékkaðu á því , það er frekar mikið ógeðslegt
12.11.2006 16:56 #