Matarspjall
100% súkkulaði
Í framhaldi af súkkulaðibúðingnum í gær - Flestir kannast sjálfsagt við 70% súkkulaði o.fl. og í sérverslunum hér (t.d. Vínberinu) er hægt að fá 77% súkkulaði og jafnvel 85% súkkulaði ef ég man rétt - en vinnufélagi minn var áðan að gefa mér að smakka 100% súkkulaði sem honum hafði verið fært frá Ítalíu.
100% súkkulaði þýðir að það er ekki eitt korn af sykri í súkkulaðinu, eingöngu kakómassi og kakósmjör. Þetta er mjög sérstakt súkkulaði, svolítið þurrt og beiskt en bragðið er mjög hreint og eftirbragðið sérlega sterkt. Ekki súkkulaði sem maður borðar eintómt (en reyndist fara nokkuð vel með kaffisopa) en ætti að vera fínt í ýmiss konar ábætisrétti, kökur og konfekt. Og auðvitað gott fyrir þá sem vilja forðast allan sykur.
Nanna



Skrifa athugasemd