Matarspjall
Súkkulaðibúðingsdagurinn
Vissuð þið að í dag er Súkkulaðibúðingsdagurinn (National Chocolate Pudding Day) í Bandaríkjunum?
Mig langar reyndar ekkert sérstaklega mikið í súkkulaðibúðing núna en það er kannski af því að ég var rétt að enda við að gæða mér á ýmsum kræsingum sem hún Sóla bauð upp á í Gestgjafaeldhúsinu og þið munuð fá uppskriftir að í síðsumarsblaði Gestgjafans, sem kemur út í ágústbyrjun. Þátturinn hennar er með berjaþema - jú, og reyndar kom súkkulaðibúðingur ögn við sögu. Ber og súkkulaði eiga nefnilega alveg ljómandi vel saman.
Mig langar eiginlega meira í ís í kvöld, jafnvel þótt sólin sé ekkert að glenna sig. Hmm, kannski ég slái bara tvær flugur í einu höggi og búi til súkkulaðiís. Með hindberjum.
Nanna



Skrifa athugasemd