Matarspjall
Skínandi Silfur
Það var opnunarteiti á Silfri í gær (nýja veitingastaðnum á Hótel Borg) og auðvitað mættum við af Gestgjafanum þar. Staðurinn virtist hinn glæsilegasti en reyndar var svo fjölmennt að maður fékk ekki almennilega yfirsýn. Í fljótu bragði virtist þó sem þarna hefði ljómandi vel tekist að samræma gamlan glæsileika Borgarinnar og nýtískulegt útlit. En það verður gaman að koma þarna þegar færra fólk er á staðnum.
Auðvitað voru veitingar á borðum, ostrur, pinnamatur og margt fleira, auk víns og annarra veiga. En seinna um kvöldið var okkur boðið að koma inn í eldhús og fá að smakka ýmsa af réttunum á matseðlinum og þar er óhætt að segja að kokkarnir fengu að sýna hvað þeir geta. Við smökkuðum m.a. sjávarfangssúpu, humar í fjórum útfærslum, snjókrabbamauk, dúfu, lambasteik, nautalund ... hvert öðru betra og flottara. Ekki feilnóta í þessum samsetningum. Svo kom röðin að eftirréttunum - við smökkuðum þrjá og þeir voru allir frábærir - snickers-eftirréttur (nei, auðvitað ekki gerður úr Snickers), pannacotta með mangó og kókos og tiramisú-útfærsla sem var þvílík himnasæla að við Gestgjafakonur máttum varla vatni halda - og ég komst reyndar að því seinna um kvöldið að hrifningin var ekki eingöngu bundin við kvenþjóðina.
Ég hlakka mikið til að fara á Silfur sem gestur og prófa óvissuferðina þeirra, fimm (eða sjö) rétti eftir vali kokksins. - Já, yfirkokkurinn á Silfri er Þórarinn Eggertsson, matreiðslumeistari ársins 2005 og mér sýndist hann vera með býsna gott lið í eldhúsinu með sér. Þjónaliðið lofar líka góðu og vínseðillinn virtist álitlegur, að mati þeirrar okkar Gestgjafakvenna sem hefur vit á vínum.
Eina atriðið sem ég sá sem ekki var í lagi var matseðillinn, það hefði þurft að prófarkalesa hann betur. Reyndar lofsvert að þarna er greinilega lögð áhersla á að nota íslensk hráefnisheiti og ekkert verið að vesenast með erlend hugtök og gæsalappir og slíkt - en stafsetninguna þarf að laga. (Undirrituð bendir á að hún er alveg til í að taka slík verkefni að sér ...)
Sem sagt, okkur líst vel á Silfur og þetta verður örugglega mjög vinsæll staður í sumar. Það verður gaman að fylgjast með hvernig gengur og hvort tekst að halda dampi, í eldhúsinu og utan þess.
Nanna



Athugasemdir: (15)
Bryn sagði:
Prófarkalestur virðist vera það síðasta á tékklista Íslenskra veitingastaða í dag. Bæði matseðlar og heimasíður okkar bestu og vönduðustu veitingastaða eru stútfull af mál og prentvillum. En óvissuferð á Silfur verður greinilega að prófa. Þakka þér enn og aftur fyrir skemmtileg skrif. Bryn
23.06.2006 11:31 #
Geig3r sagði:
classic car insurance 597770 health insurance coverage 07538
26.11.2011 6:59 #
Zackkbum sagði:
car insurance quotes ywkbq life insurance =-))
30.11.2011 3:20 #
evilgusgus sagði:
car insurance quotes dkvm health insurance quotes >:-DD
02.12.2011 1:31 #
khleon sagði:
accutane 3952 ultram >:OO
06.12.2011 2:14 #
omgomgrawr sagði:
cheap car insurance 6524 life insurance premium :-P home inspector insurance 80873 cheap health insurance gty
22.12.2011 6:46 #
rializethis sagði:
cheap health insurance =P health insurance quotes =-( home insurance florida %OOO
24.12.2011 6:30 #
pandisk sagði:
homeowners insurance 8-O health insurance quotes :-)) homeowners insurance 491633
30.12.2011 6:02 #
parmarstas sagði:
cheap car insurance lwkkja free car insurance quotes iquzwh a auto insurance 2339 affordable health insurance 669973
01.01.2012 9:41 #
Vanitynha sagði:
free health insurance =[[[ cheap auto insurance 9378 health insurance quotes >:-(
05.01.2012 4:20 #
rice1snice sagði:
home owners insurance quote >:-[[[ auto insurance quotes nqxp individual health insurance plans 8-P
09.01.2012 4:54 #
chongkg sagði:
cheap health insurance 8]]] short term health insurance qmbbe health insurance omxd
11.01.2012 9:24 #
Danniboydk sagði:
cheapest life insurance spq cheap life insurance 692 colorado health insurance >:-PP
15.01.2012 2:33 #
Balarky sagði:
home insurance 02035 insurance home >:-O cheap health insurance aujwr auto insurance quotes 634215
17.01.2012 5:17 #
blacki3edward sagði:
home insurance quotes :-) cheap car insurance %PPP american life insurance company =DD homeowners insurance 9759
19.01.2012 5:15 #