Matarspjall

Ekki alveg í lagi

22 jún. 2006

Við á Gestgjafanum fórum á Óliver í hádeginu; langaði að geta setið einhvers staðar úti og það var allt fullt á Vegamótum. Biðum í 45 mínútur eftir matnum okkar. Fólkið á næsta borði kom 10 mínútum á eftir okkur en fékk þó matinn sinn 10 mínútum á undan okkur. Sem hefði kannski verið afsakanlegt ef við hefðum verið með eitthvað sem tók langan tíma að elda. En nei, þau voru með hamborgara og fleira heitt; við vorum með kjúklingasalat með köldum kjúklingi og beyglur með köldum kjúklingi. Salatblöndu úr poka og tilbúnar sósur. Eina eldamennskan var að rista beyglurnar og það hefði tekið mig innan við fimm mínútur að setja alla réttina fjóra saman. Dressinguna vantaði alveg á salatið með beyglunni minni; ég kvartaði en það tók 5 mínútur að fá dressingu á borðið og þá var ég auðvitað nærri búin með beygluna, enda vorum við orðin sársvöng af biðinni. Þegar þjónustustúlkan tók af borðinu missti hún hníf ofan á eina samstarfskonu mína og það fór sinnepssósa í fötin hennar.

Við vorum ekki beðin afsökunar. Þaðan af síður var boðið upp á afslátt af reikningnum, frítt kaffi eða eitthvað slíkt. Sem ætti eiginlega að vera sjálfsagt mál þegar mistök verða í eldhúsi eða þjónustu. Ég held allavega að við förum eitthvað annað næst ...

Nanna

 

 

 

Athugasemdir: (2)

  1. Hallveig sagði:

    nákvæmlega það sama og ég lenti í um daginn! við biðum og biðum eftir beyglum sem við gátum svo ekki einu sinni borðað því það hafði gleymst að rista þær, og óristaðar beyglur eru ekkert nema soðið brauð, mjög smekklegt. Fólkið í kring um okkur fékk matinn á undan okkur þó þau settust langt eftir okkur, við fengum ekkert komment frá konunni sem afgreiddi okkur uppi þegar við kvörtuðum yfir biðinni og matnum en sá sem afgreiddi okkur niðri benti okkur á að við hefðum getað beðið um að þær væru ristaðar betur. Við svöruðum því til að við hefðum nú alls ekki nennt að bíða eftir því líka, fyrir utan það að ekki er mjög girnilegt að rista beyglur eftir að laxinn er kominn á! enga fengum við afsökunarbeiðnina né afsláttinn.. hrikalega lélegt. Mér fannst þetta hundfúlt því ég hef oft borðað á ólíver og verið mjög ánægð en þetta varð til þess að ég nenni ekki aftur þarna..

    22.06.2006 16:03 #

  2. Gunna sagði:

    voðaleg fýla er þetta í ykkur ,,þið eruð nú ekkert einar í heiminum

    20.09.2006 19:00 #

Skrifa athugasemd

 
 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði