Matarspjall
Spaghetti carbonara
Einn af réttunum sem boðið er upp á í hádeginu hér í vinnunni (kemur í bakka utan úr bæ) er spaghetti carbonara „með skinku, pepperóní, grænmeti og rösti-kartöflum". Hmm. Mér finnst spaghetti carbonara æðislegur matur en einhvern veginn langar mig ekki beint í þetta, síst eftir að það er búið að liggja í hálftíma til klukkutíma í bakkanum.
Ef ég væri að gera spaghetti carbonara mundi ég bara nota egg, nýrifinn parmesanost, nýmalaðan pipar, gott beikon, svolitla ólífuolíu, hvítlauksgeira og smáskvettu af hvítvíni ef ég ætti það til. Borið fram samstundis. Og engar röstikartöflur, takk. Mér þykir alvöru rösti gott en ég efast ögn um að það sé í boði í þessu tilviki ...
Ég hugsa að ég fari út að borða í hádeginu. Ég er heldur ekki í skapi fyrir steiktan fisk með kokkteilsósu. Og það viðrar ekki til þess.
Nanna



Skrifa athugasemd