Matarspjall
Gestgjafinn flytur ... í fjóra daga
Segja má að Gestgjafinn flytji sig um set yfir í Kópavog nætu dagana, því að allir blaðamennirnir verða á sýningunni Matur 2006, þar sem Gestgjafinn er með stóran bás. Í básnum verða alltaf einhverjir blaðamenn tilbúnir að svara spurningum og leysa úr erindum og við munum líka bjóða þeim sem líta við upp á eitthvert góðgæti.
Svo verðum við á rölti á sýningarsvæðinu, fylgjumst með því sem er að gerast og fleira. Þarna eru ýmsar skemmtilegar keppnir í gangi, svo sem uppþvottakeppni og ostrukeppni. Matreiðslumenn keppa um titilinn Matreiðslumaður ársins. Fulltrúi Íslands, Þórarinn Eggertsson, sem sjá má á myndinni hér til hliðar taka við viðurkenningu sem Matreiðslumaður ársins 2005, keppir um titilinn Matreiðslumaður Norðurlanda. Kokkanemar, framreiðslunemar og kjötskurðarmenn keppa um Íslandsmeistaratitla og þarna er líka álfukeppni þar sem erlendir matreiðslumenn keppa sín á milli og margt fleira.
Ekki má gleyma kaffibarþjónakeppninni, en ég hef reyndar sérstakan áhuga á henni í ár þar sem sonur minn ætlar að spreyta sig og ég er hrædd um að ég verði ekki alveg hlutlaus - ég er að minnsta kosti búin að biðja um að einhver annar skrifi um þá keppni í blaðið ...
Hátíðin Food and Fun var haldin í Reykjavík á dögunum eins og flestir vita. En reyndin er sú að það er ekki minna um „fæðu og fjör“ í Kópavoginum þá daga sem Matar-sýningin stendur yfir. Hún er reyndar bara annað hvert ár en Friðrik V. Karlsson og félagar hans fyrir norðan stefna að því að gera sýninguna Matur-inn, sem haldin var í fyrsta skipti á Akureyri í fyrra og verður aftur að ári, að mótvægi við sýninguna í Fífunni og það verður gaman að fylgjast með hvernig til tekst. - Þess má annars geta að Friðrik og flestir sem tóku þátt í Matur-inn fyrir norðan eru með sérstakan, stóran Norðurlandsbás á sýningunni og þið skuluð endilega líta inn til þeirra þar.
Nanna


Skrifa athugasemd