Matarspjall
Laukur lífsins
Lífið er eins og laukur; maður flysjar burt eitt og eitt lag í einu og kemst á endanum að því að það er enginn kjarni. Og stundum grætur maður.
Það má kannski deila um samlíkinguna en hitt er víst að ég á afskaplega erfitt með að hugsa mér lífið án lauks. Laukur er bæði grænmeti og krydd - líklega ódýrasta grænmeti og ódýrasta krydd sem til er. Það er hægt að gera alls konar kræsingar úr lauk og hann er ómissandi undirstaða í ótal réttum, frábær viðbót við aðra.
Laukur hefur líka fylgt mannkyninu frá því að sögur hófust og jafnvel lengur. Elstu mataruppskriftir sem vitað er um eru á leirtöflum frá tímum Súmera, 4-5000 ára gamlar. Þær fundust í Írak á síðustu öld og nú hefur tekist að túlka þær að mestu. Laukur af ýmsum tegundum er uppistaðan í mörgum þessara uppskrifta.
Ég veit að ýmsir borða ekki lauk, eða segjast ekki gera það. Þó hef ég grun um að margir þeirra sömu mundu sakna laukbragðsins töluvert ef allur laukur hyrfi raunverulega úr fæðu þeirra því að líklega eru margir sem gera sér ekki grein fyrir því hvað laukur er notaður víða.
Ég er að hugsa um að elda mér lauksúpu í kvöldmatinn. Það má finna nokkrar uppskriftir hér í uppskriftasafninu hér á vefnum.
Nanna



Athugasemdir: (3)
Bergþór Jónsson sagði:
Jamm, laukur er lífsnauðsynlegur. Ég hef nú stundum sagt bæði í gamni og alvöru að ef ég veit ekki hvað ég ætli að hafa í matinn þá skeri ég niður lauk meðan ég hugsa mig um.
22.03.2006 22:46 #
laukur sagði:
laukur er jafn naudsinlegur og konann
12.04.2006 19:15 #
Epsylon sagði:
Og þá er ekki úr vegi að spyrja hvort þú vitir hvað "green onion" heitir á íslensku. Var að sjá hann í uppskrift sem mér finnst alveg aaagalega góð.
14.04.2006 10:42 #