Matarspjall
Kaffi eða kók?
Vissuð þið að það er nýr kókdrykkur á leiðinni á markað? Allavega í Bandaríkjunum; spurning hvort og þá hvenær hann verður markaðssettur hér. Þessi drykkur kallast Coca Cola Blak og er kók bragðbætt með kaffi-essens. Drykkurinn á að koma á markað í Bandaríkjunum 4. apríl næstkomandi og verður kynntur sem örvandi hressingardrykkur fyrir fullorðna. Hann á að vera tiltölulega hitaeiningasnauður.
Gaman verður að sjá hvort þessi drykkur gengur betur en ýmsar aðrar tilraunir sem Coca Cola-verksmiðjurnar hafa gert á undanförnum árum. Pepsi, Starbucks og fleiri munu reyndar áður hafa gert tilraunir með kóla-kaffidrykki sem ekki hafa tekist vel.
Sjálf lendi ég afar sjaldan í þeirri aðstöðu að vera í vafa um hvort ég eigi að fá mér kók eða kaffi að drekka. En svona drykkur mundi jú vissulega leysa öll slík vandamál í eitt skipti fyrir öll.
Nanna


Skrifa athugasemd