Matarspjall

Gestgjafinn í bítið

8 mar. 2006

Ef þið voruð að horfa á Ísland í bítið í morgun hafið þið kannski séð þau Guðrúnu Hrund, ritstjórnarfulltrúa Gestgjafans, og Albert, nýja blaðamanninn okkar, kynna Miðjarðarhafsblaðið. Ég er einmitt núna að borða brauð með tapenade-maukinu sem þau voru með í þættinum - mmm ... og svakalega einfalt að gera það.

Sumir stoppa kannski við þegar þeir sjá ansjósur í uppskriftinni því að það er nokkuð sem virðist falla illa að smekk margra Íslendinga. En verið alveg ósmeyk; það er ekkert ansjósubragð af tapenade-inu. Gott tapenade er dæmi um blöndu þar sem nokkur bragðsterk hráefni renna saman í eina frábæra heild.

Nanna

 

Athugasemdir: (2)

  1. hildigunnur sagði:

    Er ekki hægt að skrá spjallið á MikkaVef, ég missi alltaf af því :-(

    11.03.2006 9:54 #

  2. dóra sagði:

    nammm... ég prófaði þetta tapenade um helgina og það er rosalega gott, þrátt fyrir að hafa reyndar sleppt ansjósunum.

    15.03.2006 16:01 #

Skrifa athugasemd

 
 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði