Matarspjall

Matur - saga - menning

10 feb. 2006

Nú stendur til að stofna félag áhugafólks um íslenska matarhefð og forna matargerð. Hér fer á eftir kynningarbréf frá undirbúningshópnum:

Miðstöð íslenskra matarhefða og fornrar matargerðar
 
? Starfsemi félagsins um mat, sögu og menningu mun felast í því að kynna framleiðslu á matvælum og þjóðlegum íslenskum réttum frá ólíkum tímum. Gestir fá tækifæri til að smakka á matnum, sjá handbragð, áhöld og matvæli.
? Sýnt verður hvernig forfeður okkar notuðu það sem til var í náttúrunni bæði til matar og lækninga.
? Á ákveðnum dögum verður hægt að bjóða upp á skemmtiatriði frá sama tíma og maturinn sem í boði er. Þá gæti starfsfólk klæðst fatnaði frá sama tíma og maturinn. 
? Frá upphafi Íslandsbyggðar hafa íslenskar konur að mestu eða öllu leyti staðið fyrir allri matarvinnslu og matargerð á heimilum landsins. Það er því vel við hæfi að félag um stofnun „matarseturs“ verði stofnað af konum.
? Í byrjun 20. aldar tóku konur sig saman og stofnuðu Heimilisiðnaðarfélag Íslands. Tilgangur félagsins var, og er, að auka og efla íslenskt handverk sem á rætur í þjóðlegum menningararfi. Nú, tæpum hundrað árum síðar, hafa nokkrar konur ákveðið að fara sömu leið og stofna félag til að endurvekja, vernda og kynna íslenska matarhefð.


Matur er mannsins megin

? Matur og matargerð er veigamikill þáttur í sögu hverrar þjóðar. Íslensk matarhefð er að mörgu leyti einstök, bæði hvað varðar hráefni, vinnslu og geymslu.
? Um þessar mundir ríkir mikill og almennur áhugi á alþjóðlegri matargerð, jafnt innanlands sem utan.
? Ferðamenn leita gjarnan uppi þjóðlega rétti til að kynnast betur landi og þjóð.
? Enn sem komið er hefur íslenskri matarmenningu ekki verið sýndur sá sómi sem henni ber og ungt fólk á Íslandi kann jafnvel betri skil á erlendum skyndibitamat en þjóðlegum eða hefðbundnum íslenskum mat.
? Nú þegar hefur undirbúningshópur lagt drög að því að fá leigt húsnæði að Grandagarði 8, til kynningar á þjóðlegum réttum.
? Væntanlegum stofnfélögum er boðið til fundar fimmtudaginn 16. feb. kl. 17:15 að Grandagarði 8, 2. hæð.

Undirbúningshópur:
Birna Kristín Lárusdóttir, Margrét Gunnlaugsdóttir, Sigrún Magnúsdóttir, Sigrún Ólafsdóttir, allar þjóðfræðingar, og Laufey Steingrímsdóttir næringarfræðingur.

 

Athugasemdir: (1)

  1. Elsa E. Guðjónsson sagði:

    13. september 2006 Gangi ykkur allt í haginn með nýja félagið! Kveðjur, Elsa E. Guðjónsson

    13.09.2006 23:42 #

Skrifa athugasemd

 
 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði