Matarspjall

Fimmtíu bollar á dag

30 jan. 2006

Ég er ađ lesa í bók sem heitir A History of the World in Six Glasses, ţar sem höfundurinn rekur mannkynssöguna í drykkjum, ef svo má segja - byrjar á bjórbruggun á steinöld og endar á kókakóla. Drykkirnir sex (eđa drykkjarflokkarnir) sem hann notar til ađ rekja söguna eru, fyrir utan bjórinn og kókiđ, léttvín, brennd vín, kaffi og te.

Ţađ eru margar athyglisverđar frásagnir í ţessari bók og ţar á međal var ég ađ lesa í tekaflanum um hollenska lćknirinn Cornelius Bontekoe, sem uppi var um miđja 17. öld. Hann hvatti mjög ákaft til tedrykkju; sagđi ađ fólk ćtti helst ađ drekka tebolla á klukkutíma fresti, byrja kannski á tíu tebollum á dag og auka svo neysluna. Sjúklingum ráđlagđi hann ađ drekka minnst fimmtíu tebolla á dag en sagđi ţó ađ tvö hundruđ bollar á dag vćru líklega hámarkiđ.

Reyndar voru tebollar á ţessum tíma líklega mjög litlir, kannski ekki mikiđ stćrri en fingurbjargir. En ţađ kemur varla á óvart ađ Hollenska Austur-Indíafélagiđ, sem hafđi einkaleyfi á teinnflutningi til Hollands, verđlaunađi Bontekoe fyrir skrifin - eđa pantađi ţau hjá honum.

Te er ágćtt. En fimmtíu bollar á dag ...

Nanna

 

Skrifa athugasemd

 
 
 
Ţessi vefur byggir á Eplica - Vefsvćđi