Matarspjall
Hollt og óhollt á Nickelodeon
Bandarískur neytendahópur ætla að höfða mál á hendur Kellogs og Nickelodeon-sjónvarpsstöðinni og krefjast þess að hætt verði að auglýsa óhollan mat í sjónvarpsþáttum sem ætlaðir eru börnum.
Samkvæmt könnun sem gerð var á dagskrá Nickelodeon voru á ákveðnu tímabili í haust sýndar 168 sjónvarpsauglýsingar um mat. Þar af var í 88 tilvikum verið að auglýsa mat sem hafði lítið næringargildi, var mjög sykuraugðugur, fituríkur eða á annan hátt óhollur. Neytendahópurinn segir að þegar dagskrá nokkurra laugardagsmorgna var skoðuð, samtals 27 1/2 klst. af barnaefni, hafi komið í ljós að í 98% auglýsinganna sem sýndar voru var hvatt til neyslu á óhollum mat.
Áður hefur verið reynt að höfða mál á hendur McDonalds fyrir að beita blekkingum í auglýsingum og fá börn til að borða óhollan mat. Það mál er enn í gangi en hluta þess hefur verið vísað frá dómi.
Nickelodeon hefur þó sér til málsbóta að þar eru sýndir þættirnir um Latabæ, þar sem börn eru hvött til að lifa heilbrigðu lífi og borða hollan mat. Dóttursonur minn rak augun í gulrót á eldhúsbekknum hjá mér um daginn, hrópaði „Latabæjarnammi!" og hámaði hana í sig.
Nanna



Skrifa athugasemd