Matarspjall

Borðað til að bæta geðið

16 jan. 2006

Það hefur lengi verið ljóst að hollusta matarins sem við borðum hefur bein áhrif á líkamlega heilsu okkar en samkvæmt nýjum breskum rannsóknum eru áhrifin á andlega heilsu síst minni. Þeir sem borða óhollan og mikið unninn mat sem inniheldur mikið af mettaðri fitu og sykri eru líklegri til að þjást af þunglyndi, lélegu minni og fleiri andlegum kvillum en þeir sem borða mikið af ferskmeti og hollum matvælum.

Dr. Andrew McCulloch, yfirmaður hjá The Mental Health Foundation, segir að í ýmsum tilvikum gefi breytt mataræði betri raun í baráttunni við andlega kvilla en lyfja- eða viðtalsmeðferð. Það eru ekki síst omega-3-fitusýrurnar sem skortir í nútímamataræði; Bretar borða 34% minna grænmeti og 67% minna af fiski en þeir gerðu fyrir hálfri öld og það þýðir mainna af hollum fitusýrum, steinefnum og vítamínum. Kjúklinganeysla hefur aukist en um leið hafa kjúklingar orðið mun feitari en áður - fituprósentan hefur farið úr 2% í 22% - og þar er ekki um holla fitu að ræða.

Hann hvetur fólk til að bæta mataræðið, borða meira af fersku grænmeti, ávöxtum og fiski. Það má líka benda á að lýsi hefur í sumum tilvikum gefist vel gegn ofvirkni, athyglisbresti og fleiri slíkum kvillum hjá börnum.

Nanna

 

Skrifa athugasemd

 

Innskráning



Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði