Matarspjall
Kál eða rósir?
„Aðeins hinir hjartahreinu geta eldað góða súpu,“ sagði tónskáldið Beethoven víst einhvern tíma. Samkvæmt því er ég líklega frekar hjartahrein því að ég bý stundum til ágætar súpur. Matarmiklar súpur eiga alveg sérlega vel við á vetrardögum eins og þessum; íslensk kjötsúpa er auðvitað alltaf sígild en það er hægt að gera alls konar góðar súpur úr næstum hvaða hráefni sem er og það þarf ekki að vera dýrt. Góð frönsk lauksúpa slær til dæmis næstum allar aðrar súpur út.
Lauksúpan er líka gott dæmi um það að bestu súpurnar eru ekki endilega þær sem gerðar eru úr dýrustu og fínustu hráefnunum. Þau valda stundum vonbrigðum. Eða eins og bandaríski rithöfundurinn H.L. Mencken orðaði þetta: „Hugsjónamaður er sá sem veitir því athygli að rós ilmar betur en kálhöfuð og dregur þá ályktun að af henni megi einnig sjóða betri súpu.“
Það verður súpuþáttur í næsta Gestgjafa eins og ég hef áður nefnt. Engin rósasúpa þar. Reyndar ekki kálsúpa heldur, bara blaðlaukssúpa - en það verður eitthvað við flestra hæfi.
Nanna


Skrifa athugasemd