Matarspjall
Best fyrir?
Ég er með kryddbox á skrifborðinu hjá mér sem samstarfskona mín var að skila, ég lánaði henni það fyrir jólin. Colman's Mustard sem ég fann inni í skáp hjá mér eftir nokkra leit. Sinnepsduftið í boxinu er komið nærri sex ár fram yfir ,,best before" dagsetninguna. Kryddið er samt enn í fínu lagi, enda í ljós- og loftheldu málmboxi. Kannski þarf þó að nota ögn meira af því en áður.
Einu sinni notaði ég niðursuðuvöru sem var komin fimm ár fram yfir ,,best before". Einhverjir ávextir, man ekki lengur hvað þetta var. En þeir brögðuðust vel og engum varð meint af. Ég er líka viss um að í jarðskjálftabirgðunum mínum (niðursuðudósalager inni í búri) leynist ýmislegt sem er búið að vera þar nokkuð lengi. Ég hef ekki áhyggjur af því; veit að niðursoðnar gulrætur geta t.d. geymst óskemmdar í 114 ár.
Ég veit að margir henda samstundis öllu sem er komið á best-fyrir-dag. Ekki ég. Það fer þó eftir því hvað það er og það gegnir allt öðru máli með síðasta neysludag, þeirri dagsetningu tek ég yfirleitt mark á. Ég tala nú ekki um viðkvæma ferskvöru eins og hakk, ég kaupi helst ekki nautahakk nema sama daginn og það er hakkað. Eða pakkað allavega; ég vona að það sé sama dagsetning. Maður veit samt aldrei.
Nanna



Athugasemdir: (1)
Emilía Björg Jónsdóttir sagði:
Sælar. Coleman's sinnepsduftið er lykillinn í kjúklingauppskrift sem hefur verið í fjölskyldunni minni í mörg ár. Þar sem það er ekki lengur selt á Íslandi kom ég mér upp nokkrum dósum fyrir nokkrum árum. En nú eru síðustu birgðirnar á þrotum og er ég í mestu vandræðum með finna þetta "eina rétta" í staðinn. Getið þið bent mér á hvar gott sinnepsduft er að finna? Kveðja, Emilía.
08.07.2009 22:32 #