Matarspjall

Fuglaflensa

6 jan. 2006

Ótti við fuglaflensu virðist ekki hafa dregið neitt úr kjúklinganeyslu í Bandaríkjunum, a.m.k. ekki enn sem komið er; neyslan í fyrra var 85 pund á mann en hafði verið 84 pund árið 2004. Kjúklingaframleiðendur vilja þó hafa vaðið fyrir neðan sig og allir stærstu framleiðendurnir áforma að auka eftirlit og leita að fuglaflensu í hverjum einasta kjúklingahópi, en hingað til hafa verið teknar stikkprufur og aðeins sumir hópar prófaðir.

Talsmenn neytenda fagna framtakinu en hafa þó efasemdir um að þetta sé nægilegt. Meiningin er að taka 11 kjúklinga úr hverjum hópi og leita að fuglaflensusmiti í þeim en í meðalstórum „hópi“ eru 55-60.000 fuglar. Auk þess eru prófanirnar ekki skylda og fara fram á vegum framleiðenda sjálfra en ekki opinberrar eftirlitsstofnunar.

Alls er slátrað yfir 9 milljörðum kjúklinga í Bandaríkjunum á ári hverju.

Nanna

 

Skrifa athugasemd

 

Innskráning



Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði