Matarspjall
Hundabakarí
Í París er búið að opna bakarí sem helgar sig bakstri á kökum og kruðeríi fyrir hunda og nefnist það Mon Bon Chien. Þar selur verðlaunabakarinn og hundavinurinn Harriet Sternstein meðal annars beikonkex sem eru mótuð eins og kettir og foie gras-kökur sem lagaðar eru eins og bein.
Allt er bakað á staðnum og Harriet segist baka 2-300 kökur á dag, auk þess sem hún sinnir sérpöntunum.
Þetta væri kannski viðskiptahugmynd fyrir Ásgeir Sandholt eða einhvern annan íslenskan verðlaunabakara. Skemmtileg tilbreyting allavega ...
Nanna



Skrifa athugasemd