Matarspjall

Jamie setur pylsugerð á hausinn

5 jan. 2006

Herferð Jamie Olivers til að gera matinn sem boðið er upp á í breskum skólum hollari og betri virðist hafa borið einhvern árangur. Að minnsta kosti hefur dregið það mikið úr sölu til skólamötuneyta á unninni kjötvöru, pylsum, hamborgurum og þess háttar að stórt fyrirtæki í þeim geira, Canterbury Foods, lagði upp laupana um áramótin.

Jamie heldur baráttunni áfram og ætlar að gera nýja þáttaröð undir nafninu Jamie's Scool Dinners. Hann ætlar meðal annars að leggja áherslu á að fræða krakkana sjálfa um mat og næringu. „Ég heimsótti nýlega leikskóla á Ítalíu og þar voru þriggja og fjögurra ára krakkar sem vissu meira um mat en 25 ára Englendingar gera," segir hann.

Nanna

 

Skrifa athugasemd

 
 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði