Matarspjall
Stiltonostur í hættu
Ég var að sjá frétt á Sky News áðan þar sem var verið að fjalla um hættu sem steðjar að Stiltonostinum fræga, líklega þekktasta osti Breta. Þannig er að breska manneldisráðið vill draga úr saltneyslu Breta og það stendur til að setja reglugerð um hámarksaltmagn í ýmsum matvörum, þar á meðal osti. Markið á að setja við 2%, skilst mér, en hefðbundinn Stiltonostur inniheldur 2,5% salt, raunar minna en flestir aðrir blámygluostar (franskur Roquefortostur inniheldur um 4% salt). Framleiðendur segja að ekki sé hægt að draga meira úr saltmagninu án þess að osturinn breytist svo verulega að ekki sé um sömu vöru að ræða. Fleiri hefðbundnar matvörur munu vera í sömu hættu.
Auðvitað er góðra gjalda vert að stemma stigu við saltneyslu, sem er of mikil víðast hvar á Vesturlöndum, þar á meðal hér á landi. En mér finnst ekki rétt að gera það með reglugerðum sem koma í rauninni í veg fyrir að hægt sé að framleiða matvöru sem gerð er samkvæmt aldagömlum hefðum og er auk þess lítill þáttur í daglegu fæði. Þeir eru varla margir sem borða Stiltonost í óhófi þótt margir kaupi sér eina krukku eða svo fyrir jólin. Hangikjötið okkar kann að vera saltara en hollt þykir en þótt það sé borðað einu sinni eða tvisvar yfir hátíðarnar ætti það varla að hafa mjög skaðleg áhrif á heilsuna. Það er saltið í hversdagsmatnum sem þarf að hafa áhyggjur af og þá er nær að beina sjónum að margs konar unnum matvælum, pakkavöru, skyndibitum og öðru slíku, sem er enn ríkari þáttur í mataræði Breta en Íslendinga.
Ég á hálfa krukku af afbragsgóðum Stiltonosti í ísskápnum. Sjálf þarf ég að hafa gætur á saltneyslu minni að læknisráði en mér dettur ekki í hug að láta það halda mér frá því að fá mér svolítið af þessum afbragðsgóða osti af og til. Ég spara frekar saltið í einhverju öðru ...
Nanna



Skrifa athugasemd