Matarspjall

„Fiskur og franskar“

2 jan. 2006

Það eru áreiðanlega margir sem geta hugsað sér að fá góðan og einfaldaan fiskrétt í kvöldmatinn og þess vegna ætla ég að setja hér inn fiskrétt úr janúarblaði Gestgjafans. Ef þið viljið ekki hafa franskar (ofnsteiktar) með er alveg hægt að hafa bara soðnar kartöflur, hrísgrjón eða gott grænmetissalat.

„Fiskur og franskar“

Ekta fiskur og franskar er ekki hollasti matur sem hægt er að fá sér en þessi útgáfa er mun heilsusamlegri. Kartöflurnar eru bakaðar í ofni og fiskinum brugðið undir grillið.

1 kg bökunarkartöflur
8 msk. olía
salt
700-800 g fiskflök, roðflett og beinhreinsuð (t.d. ýsa eða þorskur)
nýmalaður pipar
1 sítróna

Hitið ofninn í 200°C og klæðið ofnskúffu með bökunarpappír eða álpappír. Afhýðið kartöflur og skerið þær í langar ræmur, 6-8 mm þykkar. Setjið 6 msk. af olíu í skál, veltið kartöfluræmunum vel upp úr olíunni og saltið þær (eða kryddið með kartöflukryddi). Dreifið þem í ofnskúffuna og bakið þær síðan í 30-40 mínútur, eða þar til þær eru meyrar í gegn og farnar að taka lit. Klæðið á meðan bökunarplötu með álpappír. Skerið fiskinn í stykki og penslið með olíu á báðum hliðum. Kryddið með pipar og salti og raðið á plötuna. Rífið börkinn af sítrónunni yfir og kreistið svo safa úr 1/2 sítrónu yfir fiskinn. Hitið grillið í ofninum (kartöflurnar mega vera inni áfram) og grillið fiskinn efst í ofni í 4-6 mínútur, eftir þykkt, eða þar til hann er rétt grillaður í gegn. Ekki þarf að snúa stykkjunum. Berið fram með kartöflunum og kaperssósu (eða annarri góðri ídýfu).

Kaperssósa:
1 dós (200 ml) sýrður rjómi 10%
2 tsk. kapers
nokkrar dillgreinar
nýmalaður pipar
salt

Hrærið saman sýrðan rjóma og kapers og bragðbætið e.t.v. með svolitlu af leginum úr kaperskrukkunni. Saxið dill og hrærið saman við. Kryddið með pipar og salti eftir smekk.

Nanna

 

Athugasemdir: (1)

  1. Sigrún sagði:

    Ummmmmmm :) Frábært! Hlakka til kvöldmatarins!! Já og gleðilegt nýtt ár!

    03.01.2006 14:31 #

Skrifa athugasemd

 
 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði