Matarspjall

Hvað er með mestum afslætti?

17 des. 2005

Ég var í einni Bónusbúðinni í gær og í kæliklefanum var gömul kona sem leitaði aðstoðar bæði starfsmanna og annarra viðskiptavina og talaði hátt. Hún var að leita sér að kjöti, sennilega í jólamatinn. Ég bauðst til að aðstoða hana en varð dálítið undrandi þegar ég komst að því að það eina sem skipti hana máli var að afslátturinn væri sem mestur. Það virtist ekki neitt atriði um hvaða kjöt var að ræða eða hvað það kostaði, með eða án afsláttar - það var afsláttarprósentan sem réði. Hún gafst loksins upp á hjálp minni þegar ég gat ekki fundið fyrir hana neitt sem var með meira en 30% afslætti. Alveg sama þótt ég reyndi að benda henni á kjöt sem var ódýrara en þetta með 30% afslættinum og að mínu mati síst verra.

Ég fór svo að velta því fyrir mér hvort það væru ekki margir sem létu stjórnast af afslættinum umfram annað. Og skyldi það ekki vera svo að einhverjir seljendur notfærðu sér þetta á einhvern hátt?

Ég man að fyrir nokkrum árum kom á markað ný tegund af kjötáleggi frá ákveðnum framleiðanda. Ég prófaði hana strax og líkaði ágætlega, þannig að ég keypti þetta álegg öðru hverju næsta árið eða svo. Ég vissi því vel hvað kílóverðið var. En einn daginn þegar ég kom í búð og ætlaði að kaupa þetta sá ég að á áleggsbréfinu var stór og áberandi miði með textanum Sértilboð! eða eitthvað ámóta. Þetta leist mér vel á og ætlaði að kaupa að minnsta kosti tvö bréf fyrst áleggið var á tilboði. En þegar ég leit betur á miðann var kílóverðið nákvæmlega það sama og áður. Hvert var þá sértilboðið?

Ég hringdi í Neytendasamtökin út af þessu og fékk ef ég man rétt það svar að þetta væri ,,löglegt en siðlaust". Ekki veit ég hvort lögin hafa breyst, kannski er þetta enn fullkomlega löglegt. En allavega er vissara að gá að sér þegar vara er merkt sem eitthvert kostaboð - það er ekkert víst að hún sé ódýrari en önnur sambærileg vara þegar vel er að gáð.

Nanna

 

Athugasemdir: (2)

  1. Sesselja sagði:

    Þetta er mjög algengt hér í Danmörku! Síðasta nýja tilfelli sem að ég man um var reyndar gloss sem að ég var búin að sjá í búð á ákveðnu verði og sá það svo í annari búð á tilboði á nákvæmlega sama verði. Um daginn sá ég svo smákökur í tvígang sem að svo voru komnar á tilboð í seinna skiptið og höfðu rokselst! Danir lifa og hrærast í svona tilboðum og ég hef rekið mig á það alloft á þetta hér!

    19.12.2005 18:50 #

  2. pabmussy sagði:

    australian community pharmacy authority http://sundrugstore.net/products/endep.htm mexican steroid pharmacy online

    31.01.2012 14:50 #

Skrifa athugasemd

 

Innskráning



Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði