Matarspjall

Rúlluterta á forsíðum stórblaðanna ...

28 nóv. 2005

Great minds think alike,“ er stundum sagt og það kom einmitt í hugann þegar við hér á Gestgjafanum sáum forsíðuna á jólablaði matreiðslutímaritsins BBC Good Food 2005. Mörg undanfarin ár hefur jólabúðingur, enskar jólakökur eða annað slíkt prýtt forsíðuna og þær hafa verið hver annarri líkar. En í ár ber svo við að forsíðumyndin er af brúnni rúllutertu með ljósri fyllingu - alveg eins og var á kökublaði Gestgjafans.

Gestgjafablaðið kom reyndar út á undan - en við ætlum nú ekki að eigna okkur einkarétt á hugmyndinni. Það er aftur á móti bústin og falleg önd sem prýðir forsíðu jólablaðs Gestgjafans í ár.

Nanna

 

Athugasemdir: (1)

  1. María sagði:

    Er búið að birta vinningshafa að fartölvunni? þ.e. v/þeirra sem skráðu sig á vefinn fyrir 1. okt?

    01.12.2005 15:33 #

Skrifa athugasemd

 

Innskráning



Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði