Matarspjall
Kalkúnadagurinn mikli
Í dag borða 95% Bandaríkjamanna kalkúna (hinir eru sennilega flestir grænmetisætur) og það mætti því ætla að Bandaríkjamenn væru mestu kalkúnaætur í heimi. Svo er þó ekki - ekki nema miðað sé við heildarneyslu, því að hún er um 260 milljónir fugla á ári.
Meðalkalkúnaneysla á mann í Bandaríkjunum er hins vegar um 8 kg á ári en Ísraelsmenn hafa vinninginn, þeir borða yfir 20 kg á mann á ári. Í þriðja sæti eru Ungverjar með um 6,5 kg. Síðan koma Pólverjar, Kanadamenn og Mexíkóbúar.
Almennt er reiknað með að um 70% af fuglinum sé „hvítt kjöt“ (bringukjöt), enda hefur öll kalkúnaræktun áratugum saman miðast að því að fá bringuna sem stærsta og þykkasta og lærin sem minnst. Mesta furða að fuglarnir skuli yfirleitt geta staðið. Og þeir hlaupa allavega ekki á 30-35 km hraða á klukkustund eins og villtir frændur þeirra geta gert.
Nanna



Athugasemdir: (2)
Þórunn Hálfdanardóttir sagði:
Sæl Nanna ! Við vorum að velta fyrir okkur orðinu "kalkúni". Er rétt að segja "kalkúnn" eða "kalkúni "? Og í framhaldi af því "kalkúnabringa" eða "kalkúnsbringa" ? Hvað er rétt að nota ?
24.11.2005 13:05 #
Nanna R. sagði:
Orðabókin gefur þrjár orðmyndir, kalkún, kalkúnn og kalkúni, og gerir ekki upp á milli þeirra, nema hvað aðalflettiorðið er kalkúni. Ég held að ég noti þá mynd oftast nær en skal þó ekki sverja hitt alveg af mér. Aftur á móti tala ég alltaf um kalkúnabringu, ekki kalkúns- og ég gæti alls ekki sagt ,,kalkúnsdagurinn mikli".
24.11.2005 13:47 #