Matarspjall
Kunna konur ekki lengur að elda?
Gordon Ramsay segir að breskar konur kunni ekki að elda. Ég held að hann hafi töluvert til síns máls. Spurning hvernig þetta er hér - reyndar eru þær ungu konur sem ég þekki best margar hverjar ansi flinkar í eldhúsinu. Strákarnir ekki síður. En þær eru samt fleiri og fleiri sem dettur ekki í hug að gera neitt frá grunni, kaupa kökublöndur í pakka, sósur í pakka, vöfflumix, tilbúna kakósúpu og grjónagraut ... Allt er þetta gott og gilt. Ágætt að hafa þessa valkosti til að spara tíma og fyrirhöfn. En það er líka gott að kunna að gera hlutina frá grunni. Útkoman verður oft (vissulega þó ekki alltaf) svo miklu betri, það er yfirleitt mun ódýrara að gera hlutina en kaupa þá hálf- eða alveg tilbúna - og svo finnst sumum okkar þetta bara svo skemmtilegt. Maður veit þá líka alveg hvað maður er að gefa fjölskyldunni og þarf ekki að ráða í dulmál E-efnanna á pakkanum.
Ef fólk vill nota þessar hálftilbúnu og tilbúnu matvörur, þá er það bara hið besta mál. En mér finnst mikilvægt að kunna hitt líka - fara ekki alltaf auðveldustu leiðina. Hún er ekki endilega best þegar til lengdar lætur.
Nanna


Athugasemdir: (2)
Bjarni D sagði:
Fyrir margt löngu þegar ég starfaði fyrir kjúklingabændur,- bárust mér allskonar upplýsingar um matarvenjur fólks. Þetta voru upplýsingar frá nágrannalöndunum. Það sem var furðulegt (mér þótti það þá) að þrátt fyrir fullkomin eldhús á heimilum t.d. í USA eða Sverige, var ekki miklum tíma varið í eldamennsku. Þetta reyndust vera kannski fjögur niður tvö kvöld í viku þar sem einhver eldamennska fór fram. Það er lenska sumstaðar að heimilisfólk tekur með sér tilbúinn mat á leiðinni heim eða etur áður en það kemur heim. Svo er fólkið að koma heim á öllum tímum. Þetta er slæm þróun finnst þeim sem selja hráefni til matargerðar. Hér á landi er þessi þróun vona ég- ekki að gerast. Samt eins og þú segir Nanna.- er pakka og duft,-væðing vaxandi í matargerð! Það ætti að kynna betur fyrir Íslendingnum þá list að gera góðan mat úr litlu. Það er fróðlegt að sjá á uppskriftarsvæðum á netinu að hægt er fá þar uppskriftir að réttum sem taka lítinn tíma í matreiðslu og jafnvel æðislega stuttan tíma ! Allir að flýta sér. Inná vefsvæði bandarískra kjúklingabænda ?eatchicken.com" má t.d. finna rétti þar sem auk kjúklingsins þarf aðeins þrjú til fjögur aukaefni! Til hamingju með þetta skemmtilega vefsvæði gestgjafinn.is
25.10.2005 21:35 #
Nanna R. sagði:
Matreiðslubókahöfundurinn Claudia Roden sagði mér sögu af því að hún dvaldi einu sinni um tíma hjá vinafólki í Connecticut. Þetta var vel stætt fólk og eldhúsið var það flottasta sem hún hafði séð (og hún hefur séð þau mörg). Þar voru öll hugsanleg tæki. En þarna var aldrei eldað, fólkið lifði aðallega á pitsum sem það keypti og borðaði í bílnum á heimleiðinni.
26.10.2005 17:49 #