Matarspjall

Kvennafrí

24 okt. 2005

Til hamingju með daginn, konur og karlar. Nú eiga kannski einhverjir von á að ég komi hér með „auðvelda uppskrift handa körlunum að elda svo að konurnar geti fengið frí frá eldamennskunni," en ónei. Í fyrsta lagi finnst mér það forréttindi en ekki kvöð að fá að elda. Í öðru lagi hefur mér sýnst að það sé býsna algengt, a.m.k. hjá yngra fólki, að bæði taki jafnan þátt í eldamennskunni eða jafnvel að karlinn sjái um hana að mestu. Og svo veit ég að það eru ansi margar konur sem þurfa að elda kvöldmat hvað sem öllu kvennafríi líður því að það er ekki öðrum til að dreifa og börnin þurfa sitt.

Þess vegna ætla ég bara að stinga upp á kjúklingavængjum. Þeir eru ódýrir og það er fljótlegt og einfalt að elda þá, hver sem í hlut á. Maður tekur bara slatta af kjúklingavængjum, sker vængendana af ef þeir eru með og heggur eða sker svo hvern væng í tvennt um um liðinn, veltir þeim upp úr góðum slatta af hveiti krydduðu t.d. með papriku, kummini, chilipipar og öðru eftir smekk (og salti auðvitað), raðar þeim á pappírsklædda bökunarplötu (mega vera þétt, og steikir við 210°C í 15 mínútur. Snýr þeim þá og steikir í 12-15 mínútur í viðbót.

Á mínu heimili eru svona vængir jafnvinsælir sem hversdags- og partímatur og það má hafa með þeim salat, kúskús, hrísgrjón eða eitthvað annað. Franskar ef maður er í óhollustustuði.

Nanna

 

Athugasemdir: (1)

  1. Karen sagði:

    Ég er þér hjartanlega sammála um að það eru forréttindi að fá að elda. Ég tala nú ekki um þegar maður hefur aðgang að svona frábærum vef eins og Gestgjafavefurinn er og getur grúskað í uppskriftum og prófað eitthvað nýtt og spennandi. Takk fyrir mig og til hamingju með vefinn.

    24.10.2005 12:25 #

Skrifa athugasemd

 
 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði