Matarspjall

Kjötsúpudagurinn

21 okt. 2005

GE-0402-04Sedjandi_supurÁ morgun er fyrsti vetrardagur. Íslenskir sauðfjár- og grænmetisbændur hafa tekið saman höndum um að gera fyrsta dag vetrar að Kjötsúpudeginum og hvetja fólk til að gera það að hefð að elda kjötsúpu þennan dag. Mér finnst þetta afar vel til fundið; íslensk kjötsúpa er ævinlega góð en kannski aldrei eins og þegar kaldir vetrarvindar blása og því er tilvalið að heilsa vetri með stórum potti af kjötsúpu.

Uppskrift að íslenskri kjötsúpu má finna hér en svo er líka hægt að breyta til og prófa til dæmis þessa léttu útgáfu hérna, eða leita kannski til framandi landa og prófa þessa hér eða þessa. Fleiri uppskriftir er svo að finna í uppskriftasafninu og einnig inni á lambakjötsvefnum.

Nanna

 

Skrifa athugasemd

 
 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði