Matarspjall
Matur og (van)líðan
Breska blaðið Sunday Times birti á dögunum skemmtilega grein um það hvernig skap fólks og líðan hefur áhrif á hvað það borðar hverju sinni. Nú er ekki víst að allir séu sammála niðurstöðunum en þar má meðal annars lesa þetta:
MATARSKAP
Það sem maturinn sem þú borðar segir um tilfinningar þínar
Reiði - Kjöt
Depurð - Sætmeti, koffein
Huggunarþörf - Búðingur, ís
Einmana - Hrísgrjón, pasta
Streita, metnaðargirnd - Kartöfluflögur, sojasósa, laukur
Kynferðisleg ófullnægja - Kex, brauð
Afbrýðisemi - Hvað sem er hrúgað á diskinn
Það vekur reyndar athygli að hér eru eingöngu dregnar fram neikvæðar tilfinningar en ekki kemur fram hvað fólk borðar einkum þegar það er ánægt, glatt, hamingjusamt ...
Nanna



Skrifa athugasemd