Matarspjall
Jóla-hvað?
Ég veit ekki hvort þið eruð - eins og ég - orðin svolítið þreytt á þessum hefðbundnu jólahlaðborðum sem eru ágæt út af fyrir sig en hvert öðru lík og yfirfull af matnum sem maður er hvort eð er að fara að troða í sig á jólunum. Satt að segja hef ég heldur reynt að forðast jólahlaðborð síðustu árin, ekki síst eftir að ég fór á eitt slíkt þar sem aðalrétturinn var kjöt sem var svo salt að það var óætt, nánast eina grænmetið var grænar baunir (sem kláruðust meira að segja í miðju kafi og ekki var bætt á) og eini fiskurinn var síld. Mér finnst síld góð en svo er ekki um alla og það eru til fleiri fiskar.
Þess vegna fannst mér mjög spennandi þegar strákarnir í Rauða húsinu á Eyrarbakka höfðu samband og báðu mig um hugmyndir að réttum á jólahlaðborð. Ég setti niður á blað óska-jólahlaðborðið mitt (meðal annars með smáhliðsjón af Þorláksmessuhlaðborðinu mínu) og sendi þeim og útkomuna má sjá í auglýsingu í Fréttablaðinu í dag.
Þarna verður náttúrlega eitthvað af þessum sígildu jólahlaðborðsréttum en líka gott úrval af léttum, óhefðbundnum réttum, meiri fiskur o.þ.h.
Mér líst bara nokkuð vel á þetta hjá þeim ...
Nanna



Athugasemdir: (2)
Björn Friðgeir sagði:
Það vantar að setja upp RSS feed á matarspjallið.
19.10.2005 18:00 #
Nanna R. sagði:
Skal leggja það fyrir tölvudrengina.
19.10.2005 18:20 #