Matarspjall

Girnilegur pakki

18 okt. 2005

Pósturinn var að koma til mín áðan með bunka af flottum nýjum matreiðslubókum frá amazon.co.uk og þær togast á um athyglina. Undir venjulegum kringumstæðum hefði ég fljótlega gripið Favourite Food eftir Jill Dupleix - fínn höfundur, einfaldar og góðar uppskriftir, fallegar myndir - en núna er samkeppnin allt of hörð. Í sömu sendingu er nefnilega t.d. nýjasta bók Jamie Olivers, Jamie's Italy - ekki að mig hafi beinlínis vantað ítalskar matreiðslubækur, reyndar. Don't Sweat the Aubergine, ein af þessum skemmtilegu bókum um hvers vegna hlutirnir gerast svona en ekki svona í eldhúsinu og  hvernig maður getur lært að hætta að fara eftir uppskriftum í blindni. Líst vel á hana.

Svo var The Cook's Book í pakkanum, ég er búin að bíða eftir henni síðan ég frétti að hún væri í undirbúningi. Mikill doðrantur (svona svipuð og stóru bækurnar mínar), örugglega tvö þúsund myndir, og skrifuð af gúrúum á borð við Ferran Adria, Charlie Trotter, Peter Gordon, Shaun Hill, Ken Hom, Pierre Hermé, Rick Bayless, Marcus Wareing ... Og Jill Norman ritstýrir, sem er nú eiginlega trygging fyrir gæðunum.

Bókin sem ég hlakka mest til að lesa er samt The Kitchen Diaries eftir Nigel Slater, sem er frábær höfundur. Það er fullt af fallegum myndum í bókinni en Nigel er þannig höfundur að það er nóg að lesa orðin til að finna bragðið og ilminn af matnum.

Ég vildi bara að ég hefði meiri tíma á næstunni til að lesa í þessum álitlegu bókum.

Svo minni ég aftur á að nú geta allir tjáð sig í athugasemdunum hér.

 

Athugasemdir: (3)

  1. hildigunnur sagði:

    ekki smá spennandi bækur. Mig langar sérstaklega í Don't sweat the Aubergine, jafnvel þó ég sé tiltölulega laus við að vera niðurnegld við uppskriftirnar. Ætla hins vegar ALDREI framar að taka mark á því þegar einhver segir mér að ég þurfi ekki að salta eggaldinin áður en ég set þau í mat. Búin að brenna mig of oft á því, maturinn verður bara alltaf soggy, vatnsbragð að eggaldinunum, þau seig og gúmmíkennd og maturinn óætur að okkar mati ;-)

    19.10.2005 8:15 #

  2. Nanna R. sagði:

    Ég salta nú yfirleitt ekki eggaldin. Eða jú, ég salta þau en læt þau ekki standa með saltinu nema í undantekningartilvikum. - Ef þér líst vel á svona bækur, skoðaðu þá líka bækurnar What Einstein Told His Cook 1 og 2 og How to Read a French Fry.

    19.10.2005 8:24 #

  3. hildigunnur sagði:

    jamm, þetta er líklega smekksatriði. Við erum bara öll með þennan smekk í fjölskyldunni þannig að ég held mig bara við svitann. Kíki á bækurnar, takk.

    19.10.2005 9:58 #

Skrifa athugasemd

 
 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði