Matarspjall
Látið vita hvað ykkur finnst!
Mig langar til að hvetja áskrifendur Gestgjafans til að vera duglegir að gefa uppskriftum sem þeir hafa prófað úr uppskriftasafninu einkunnir og setja athugasemdir við þær. Þetta hjálpar okkur á Gestgjafanum til að gera betur og ekki síst hjálpar þetta öðrum til að finna góðar uppskriftir eða laga uppskriftir að sínum smekk. Við viljum ekki bara fá hrós fyrir það sem vel er gert (þótt það sé alltaf gaman), við viljum líka vita af því ef ykkur líkar ekki við eitthvað í uppskriftunum eða ef það er eitthvað sem þið skiljið ekki eða finnst að mætti vera öðruvísi.
Þetta gildir ekki bara um þær uppskriftir sem þið hafið verið að prófa síðustu dagana, heldur líka um uppskriftir úr eldri blöðum sem eru að koma inn í safnið og á eftir að fjölga til mikilla muna á næstunni.
Nanna


Athugasemdir: (3)
Kristján S Kristjánsson sagði:
Til hamingju með þennann frábæra vef, að þið hafið ákveðið að hafa leitarvél líka gerir hann að því sem maður hefur dreymt um, fletta upp í uppskriftum og fá hugmyndir, þó svo maður gerir nú ekki mikið af því, ég var að lesa eina uppskrift og þá sá ég orðið "steytt" , átta mig ekki alveg á því hvað það merkir í þessu samhengi, ef það eru fleirri orð sem verða á vegi mínum hér sem maður skilur ekki, væri ekki úr vegi að vera með orðabók á síðunni yfir það sem við á, t.d. mál, vogir og þess háttar. Með bestu þakkir Kristján
01.10.2005 12:23 #
Nanna R sagði:
Þakka þér fyrir hrósið, Kristján. Steytt þýðir í rauninni sama og malað nema oftast er talað um að mala í kvörn en steyta í mortéli. Þetta með orðabókina höfum við aðeins rætt og það er vel líklegt að hún komi seinna - við erum auðvitað með matarorðabók en það eru eingöngu erlendar þýðingar. Einhverjar upplýsingar um mál og vog er að finna hér og meira kemur örugglega seinna, við höfum t.d. talað um að vera með reiknivél þar sem unnt er að breyta mælieiningum úr einu kerfi í annað.
01.10.2005 12:45 #
Þóra Dögg Jörundsdóttir sagði:
Já tek undir með Kristjáni. Til hamingju með vefinn, hann er mjög flottur. Nú velti ég því bara fyrir mér hvort það sé nokkur þörf á að halda í þessa 10 árganga eða svo sem ég á af Gestgjafanum. Þetta er náttúrulega farið að taka ógurlegt pláss, og ég löngu búin að gleyma hvar þessi eða hin uppskriftin er sem ég prófaði einhverntíma og var svo rosalega góð. Fæ það samt varla af mér...
06.10.2005 16:01 #