Matarspjall

GE-0412-08-06_3

Ætti ég að steikja gæs í dag?

29 sep. 2005

Í dag opnum við Gestgjafavefinn. Það er eiginlega ágætlega viðeigandi að gera það núna því að í dag er Mikjálsmessa og sá dagur tengist mat á ýmsan hátt. Mikjáll erkiengill er meðal annars verndardýrlingur bakara og matvörukaupmanna og þær stéttir standa okkur óneitanlega nærri. (Hann er reyndar líka verndardýrlingur fallhlífastökkvara, spænskra lögreglumanna og fleiri, en látum það liggja á milli hluta.)

Víða í Evrópu er hefð fyrir því að hafa gæs á borðum á Mikjálsmessu. Þá voru gæsirnar sem höfðu verið á beit á ökrunum eftir að uppskerunni lauk orðnar feitar og pattaralegar og hentuðu vel í veislumáltíð. Sagt var að þeir sem borðuðu gæs á Mikjálsmessu þyrftu ekki að kvíða fjárskorti næsta árið. Því miður hef ég ekki tíma til að steikja gæs í dag, Gestgjafavefurinn gengur fyrir. Það á kannski eftir að hefna sín næsta árið.

Víða var einnig hefð fyrir því að baka stóra og mikla brauðhleifa á Mikjálsmessu og á Írlandi voru gerðar sérstakar Mikjálsmessubökur. Kannski bökur eða jafnvel brauð geti komið að einhverju leyti í staðinn fyrir gæsina og hresst ögn upp á fjárhaginn.

 

Skrifa athugasemd

 

Innskráning



Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði