Matarspjall

Hvað er mikið í einum bolla?

Bolli af blómkáli?

15 sep. 2005

Þegar eldað er eða bakað eftir bandarískum uppskriftum lendir fólk stundum í vandræðum með mælieiningar. Bandaríkjamenn nota bollamál mjög mikið og stærðin er að sjálfsögðu stöðluð – einn bolli svarar til 237 ml. Yfirleitt er þó ekki þörf á svo mikilli nákvæmni og ef í uppskriftinni segir einn bolli er því gjarna breytt í 250 eða 225 ml (2 1/2 eða 2 1/4 dl). Staðlað íslenskt bollamál er hins vegar ekki til og þetta veldur því oft ruglingi.

Ýmislegt sem Bandaríkjamenn mæla gjarna í bollum, svo sem saxað grænmeti og ávexti, mælum við frekar eftir vigt eða í stykkjatali. Hér er listi yfir nokkrar algengar hráefnistegundir:

1 amerískur bolli er um það bil:

1 bolli apríkósur, þurrkaðar — 150 g

1 bolli bananar, stappaðir — 2 meðalstórir

1 bolli blómkál, skipt í litla kvisti — 150 g

1 bolli epli, rifin eða söxuð — 1 meðalstórt

1 bolli flórsykur — 160 g

1 bolli gulrætur, rifnar — 1 1/2-2 meðalstórar

1 bolli hnetur, grófsaxaðar eða muldar — 125 g

1 bolli hveiti — 140 g 1 bolli hvítkál, skorið í ræmur — 125 g

1 bolli jöklasalat, rifið eða saxað — 60 g

1 bolli kjöt, soðið, í bitum — 150-175 g

1 bolli kotasæla — 200 g

1 bolli laukur, saxaður — 2 meðalstórir

1 bolli maískorn — korn af 2 kólfum

1 bolli ostur, rifinn — 125 g

1 bolli paprika, söxuð — 1 stór

1 bolli púðursykur — 175 g

1 bolli smjör — 225 g

1 bolli spergilkál, skipt í litla kvisti — 80-100 g

1 bolli sveppir, saxaðir — 80-100 g

1 bolli sykur — 225 g

1 bolli tómatar, saxaðir — 2 meðalstórir

Svona listi verður auðvitað aldrei nákvæmur en það er gott að hafa hann til hliðsjónar.

Nanna

 

Athugasemdir: (2)

  1. Kolla Rodeman sagði:

    Ég hef búið í Bandríkjunum í nær 30 ár. Hef fengið hundruðir íslenskra uppskrifta frá vinkonum og af netinu. Vökvar af ýmsu tagi mikið skráðir í BOLLA-tali. Bollar, jafnvel á Íslandi eru misstórir. Mörg uppskrftin hefur farið forgörðum hjá mér vegna þessa. Hversu margir millilítar (desilítrar) eru raunverulega í íslenskum bolla??????? Hvernig skilja íslenskar húsmæður bolla tal? Ég hef spurt þessa spurningu í hvert skipti sem ég kem heim, en enginn getur svarað mér. Getið þið? Kær kveðja og þakkir.

    04.12.2005 8:56 #

  2. Gunnar Grímsson sagði:

    Ég hef oft notað vefinn http://www.speckdesign.com/tools/unitconversion/volume til að umreikna ýmsar mælieiningar, svínvirkar. Hann gerir auðvitað ekki það sama og listinn hennar Nönnu að ofan en gerir sumt sem hann gerir ekki.

    01.01.2008 18:39 #

Skrifa athugasemd

 
 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði