Spurt og svarað

Vantar uppskrift af forrétti með rækju og eða humar í sósu eða hlaupi

Spurningin í heild:

Vantar uppskrift af forrétti með rækju og eða humar í sósu eða hlaupi

Gestgjafinn svarar:

Ágæti lesandi. Hér eru frábar uppskriftir að tveimur ólíkum humarforréttum:

STEIKTIR HUMARHALAR MEÐ SÆTRI CHILI-SÓSU

 

20 humarhalar, skelflettir

salt og nýmalaður pipar

2 hvítlauksrif, pressuð

3 msk. olía

20 silfurblöðkur eða svipað magn af grænkáli

8 kólfar baby-maís, skornir til helminga eftir endilöngu

1 askja baunaspírur

2 dl sæt chili-sósa


2 msk. ferskt kóríander, smátt saxað

 

Kryddið humarhalana með salti, pipar og hvítlauk og steikið í olíu á vel heitri pönnu í 1 mínútu. Bætið silfurblöðkum, maís og baunaspírum á pönnuna og steikið í 20 sek. til viðbótar. Setjið þá allt af pönnunni í skál og hellið chili-sósunni yfir. Blandið vel saman, skiptið á 4 diska og dreifið fersku kóríander yfir. Berið strax fram með hrísgrjónum, salati og góðu brauði.

 

STEIKTIR HUMARHALAR MEÐ FENNEL OG SAMBUKA-SMJÖRSÓSU

20 humarhalar, skelflettir

salt og nýmalaður pipar

2 hvítlauksrif, pressuð

1 msk. steinselja, smátt söxuð

2 msk. olía


Kryddið humarinn með salti, pipar, hvítlauk og steinselju og steikið í olíu á vel heitri pönnu í 1-2 mín.


Sambuka-sósa:

 

2 msk. olía

1/2 laukur, smátt saxaður

1 fennel, smátt saxað

1 tsk. fennelfræ

1/2 dl koníak

1 dl sambuka

2 1/2 dl humarsoð

30 g kalt smjör

salt og pipar

 

Látið lauk, fennel og fennelfræ krauma í olíu í potti í 1-2 mínútur. Hellið þá víninu í pottinn og sjóðið niður í síróp. Bætið humarsoðinu við og sjóðið niður um helming. Takið pottinn af hellunni og setjið smjörið út í. Hrærið með sleif þar til smjörið hefur bráðnað. Eftir það má sósan ekki sjóða.

 

Spurt og svarað

Ef þú vilt bera fram fyrirspurn til Gestgjafans um ákveðið hráefni, matreiðsluaðferð eða annað slíkt geturðu skrifað hana hér og sent okkur. Við reynum að finna svarið.

Spurt og svarað

 
 
 
 
 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Veflausnir