Spurt og svarað

Vantar uppskrift af forrétti með rækju og eða humar í sósu eða hlaupi

Spurningin í heild:

Vantar uppskrift af forrétti með rækju og eða humar í sósu eða hlaupi

Gestgjafinn svarar:

Ágæti áskrifandi. Ég stenst ekki mátið að senda þessa uppskrift sem er búin að slá í gegn í fjölda veislna. Ritstjórnin: Rækjur og reyktur lax með jarðarberjum og blaðlauk fyrir 8 300-400 g reyktur lax, skorinn í sneiðar 1 blaðlaukur, græni parturinn 4 meðalstór jarðarber 5 steinseljustilkar 2 eggjarauður 1 msk. sítrónusafi salt og nýmalaður pipar 2 msk. ljóst edik 2 dl olía 400 g rækjur, safi sigtaður frá og geymdur 3 matarlímsblöð, lögð í kalt vatn í 5 mín. Klæðið jólakökuform með plastfilmu og leggið reyklaxasneiðarnar í botninn og upp með hliðunum. Setjið blaðlauk, jarðarber, steinseljustilka, eggjarauður, sítrónusafa, salt og pipar í matvinnsluvél og maukið vel. Hitið edik að suðumarki, hellið því í matvinnsluvélina og látið vélina ganga á mesta hraða í 3 mín. eða þangað til lögurinn er orðinn léttur, ljós og loftmikill (L-in þrjú). Hellið olíu saman við í mjórri bunu og látið vélina ganga á meðan. Hitið tvær matskeiðar af rækjusafa í skál yfir vatnsbaði. Kreistið vatn úr matarlímsblöðum og bræðið þau í safanum. Hellið blöndunni í matvinnsluvélina og blandið vel saman. Hellið þá úr matvinnsluvélinni í skál og hrærið rækjur saman við. Setjið blönduna ofan á reykta laxinn í forminu og geymið í kæli yfir nótt. Geymist vel í kæli í 3 daga og í frysti í 3 mánuði. Skerið ískalt í fallegar sneiðar og berið fram með blönduðu salati og grófu brauði. Dominique og Eymar mæla með pinot gris frá Alsace, Pfaffenheim eða Willm, eða riesling frá Ástralíu, t.d. The Stump Jump frá d?Arenberg eða frá Peter Lehmann.

Spurt og svarað

Ef þú vilt bera fram fyrirspurn til Gestgjafans um ákveðið hráefni, matreiðsluaðferð eða annað slíkt geturðu skrifað hana hér og sent okkur. Við reynum að finna svarið.

Spurt og svarað

 
 
 
 
 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Veflausnir