Spurt og svarað

Hvar og hvernig eru sætar kartöflur ræktaðar og er hægt að rækta þær á Íslandi? Kv. Berghildur

Spurningin í heild:

Hvar og hvernig eru sætar kartöflur ræktaðar og er hægt að rækta þær á Íslandi? Kv. Berghildur

Gestgjafinn svarar:

Sæl Berghildur. Sætar kartöflur þurfa hlýtt loftslag til að þrífast en gera litlar kröfur um jarðvel og þola þurrk nokkuð vel. Þær eru upprunnar í Mið-Ameríku og þaðan bárust þær til Kyrrahafseyja fyrir tvö þúsund árum. Nú er vitað að þær höfðu einnig borigs til Austur-Afríku löngu fyrir tíma landafundanna. Þær bárust hins vegar til Evrópu undir aldamótin 1500 þegar Kristófer Kólumbus flutti þær með sér frá Haiti. Evrópubúar gleymdu þeim smátt og smátt þegar vegur kartöflunnar fór vaxandi. Það er ekki fyrr en á síðustu áratugum sem þær eru farnar að sjást aftur í Evrópu. Nú eru þær fluttar inn hingað að mestu frá mið- og Suður-Ameríku.

Spurt og svarað

Ef þú vilt bera fram fyrirspurn til Gestgjafans um ákveðið hráefni, matreiðsluaðferð eða annað slíkt geturðu skrifað hana hér og sent okkur. Við reynum að finna svarið.

Spurt og svarað

 
 
 
 
 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Veflausnir