Spurt og svarað

Góðan dag. Er að kíkja öðru hvoru inn á vefinn og sakna þess hversu illa honum virðist vera við haldið.

Spurningin í heild:

Góðan dag. Er að kíkja öðru hvoru inn á vefinn og sakna þess hversu illa honum virðist vera við haldið. Ég get amk ekki fundið greinar og uppskriftir úr nýjustu blöðunum á vefnum. Er þetta etv einhver misskilningur hjá mér? Er með búsetu á tveimur stöðum og þarf þá að þvælast með blöðin með mér milli staða ef ég hyggst prófa einhverjar nýjar uppskriftir í stað þess að geta flett þeim upp á vefnum. Vefurinn var ein ástæða þess að ég ákvað að gerast áskrifandi að blaðinu - en ég er á báðum áttum þegar ekkert virðist bætast við vefinn svo vikum og mánuðum skiptir. Stendur ekki til að uppfæra vefinn og halda honum betur við? Bestu kveðjur, Ragnhildur Ragnarsdóttir

Gestgjafinn svarar:

Sæl Ragnhildur og takk fyrir bréfið. Við höfum þvi miður verið í vandræðum með að uppfæra vefinn en vorum í startholunum með að endurhanna hann alveg þegar kreppan fór að stríða okkur. Þær áætlanir eru hins vegar enn í gangi og vinnan hafin. Ég get glatt þig með að á allra næstu mánuðum munum við fara að sjá verulegar  breytingar.

Ritstjórnin

Spurt og svarað

Ef þú vilt bera fram fyrirspurn til Gestgjafans um ákveðið hráefni, matreiðsluaðferð eða annað slíkt geturðu skrifað hana hér og sent okkur. Við reynum að finna svarið.

Spurt og svarað

 
 
 
 
 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Veflausnir