Spurt og svarað
Ef þú vilt bera fram fyrirspurn til Gestgjafans um ákveðið hráefni, matreiðsluaðferð eða annað slíkt geturðu skrifað hana hér og sent okkur. Við reynum að finna svarið.
Góðan dag, Ég er að fara að halda skírnaveislu þarnæstu helgi og vantar ráðleggingar varðandi magn veitinga. Það verða 22 gestir, ég er búin að panta skírnatertu fyrir 16 manns, en hvað mundu þið segja vera nóg af tertum og brauði með ? (Hafði hugsað mér að vera með marenstertu, rúllubrauð, brauðtertu og svo kannski hafa osta og kex með) ?
Ágæti áskrifandi. Hér eru upplýsingar sem við birtum reglulega og hafa reyns alveg öruggar að fara eftir. Gjörðu svo vel:
Magn veislufanga
Það vefst oft fyrir fólki hversu mikið magn þarf að hafa af mat og drykk á mann fyrir stórar veislur. Útlit matarins getur blekkt augað og við eigum oft erfitt með að gera okkur grein fyrir hversu mikið fólk borðar eða drekkur. Til þess að við sitjum ekki uppi með gríðarlegt magn afganga eftir veisluna eða verðum dæmd sem nískir gestgjafar þegar veisluföngin klárast áður en allir hafa fengið sinn skammt höfum við útbúið leiðbeiningar og viðmiðanir um magn veislufanga sem hægt er að styðjast við.
Kaffiboð
Í kaffiboði er oft gert ráð fyrir 3 kökusneiðum á mann ? 1 terta er u.þ.b. 10-12 sneiðar.
Af brauðmeti er reiknað með 2-3 snittum eða 2-3 sneiðum af brauðtertu á mann.
Í 25 manna veislu þarf 500 g af kaffi en þá er reiknað með 2-3 bollum af kaffi á mann.
250 g kaffipakki dugar í u.þ.b. 36-40 bolla og er þá reiknað með um 7 g af kaffidufti í bolla.
Matur
Reikna má með 200-250 g af kjöti eða fiski, þá eru bein ekki reiknuð með.
Af kjöti með beini, eins og svínakjöti, þarf 350-400 g á mann, og af kalkúna 400-450 g.
Þegar kemur að meðlæti má reikna með 150 g af grænmeti og 150 g af kartöflum eða grjónum.
Reikna má með 1/2-3/4 dl af ósoðnum hrísgrjónum (þ.e. 40-50 g) á mann.
Ef laga á pottrétt þarf 200-250 g af kjöti á mann og er þá reiknað með að í réttinum sé einnig grænmeti eins og sveppir, paprika, laukur eða annað þess háttar.
Vín
Úr venjulegri léttvínsflösku fást 5-6 glös og er oftast reiknað með allt að hálfri flösku á mann í matarveislu með sitjandi borðhaldi. Ef boðið er bæði hvítvín og rauðvín í slíkri veislu er gjarnan reiknað með 2 glösum af hvítu og 1 1/2 glasi af rauðu. Ef boðið er upp á líkjör eftir matinn er gert ráð fyrir 15 glösum úr flösku.
Kampavín
Úr einni kampavínsflösku fást um 6-8 glös. Reikna má með 2-3 glösum á mann í veislu sem stendur yfir í um 2 klst. en 1 1/2 glasi ef vínið er notað sem fordrykkur.
Gos
Úr 1 lítra fást 5 glös og reikna má með 1-2 glösum á mann.
Ef þú vilt bera fram fyrirspurn til Gestgjafans um ákveðið hráefni, matreiðsluaðferð eða annað slíkt geturðu skrifað hana hér og sent okkur. Við reynum að finna svarið.