Spurt og svarað
Ef þú vilt bera fram fyrirspurn til Gestgjafans um ákveðið hráefni, matreiðsluaðferð eða annað slíkt geturðu skrifað hana hér og sent okkur. Við reynum að finna svarið.
vantar uppskrift að draumtertu
Ágæti áskrifandi. Hér er uppskrift að tertu sem við köllum Draumarúllu. Þesi terta er rosalega góð en við notum þennan botn líka með fyllingu sem er þeyttur rjómi sem stappaður hefur verið með banana. Vonandi er þetta það sem þú varst að leita að. Kveðja, ritstjórnin. Draumarúlla fyrir 8 Hér kemur uppskrift að súkkulaðirúllu sem tekur sig alvarlega. Léttur súkkulaðibotn, bragðmikil súkkulaðimús og yndislegt rjómabragð ... fullkomið. 6 egg 140 g sykur 50 g kakó Hitið ofninn í 200°C. Þeytið saman egg og sykur þar til blandan verður ljós og létt. Sigtið kakó saman við og blandið varlega með sleikju. Setjið bökunarpappír í ofnskúffu eins og sýnt er á bls. ???XXX og smyrjið hann með olíu eða smjöri. Hellið deiginu í skúffuna, breiðið úr því og bakið í 18-20 mín. Látið kökuna bíða í 5-10 mín. Losið um kökuna við kantana og hvolfið henni á sykurstráðan bökunarpappír. Fylling: 225 g súkkulaði 3 msk. vatn 3 egg, rauður og hvítur aðskildar 2 1/2 dl rjómi 2 msk. flórsykur Bræðið súkkulaði og vatn saman við vægan hita og hrærið eggjarauður saman við. Gætið þess að hafa súkkulaðið ekki of heitt og eggjarauðurnar við stofuhita, þá fer allt vel. Best er að bræða súkkulaðið yfir vatnsbaði við mjög vægan hita í 20-30 mín. og jafnvel má byrja á því um leið og byrjað er að baka kökuna. Stífþeytið eggjahvítur og bætið þeim saman við, fyrst smávegis og síðan öllu. Blandið vel saman og smyrjið yfir kökuna. Þeytið rjóma og smyrjið honum ofan á súkkulaðimúsina. Rúllið kökunni upp og sigtið flórsykur yfir.
Ef þú vilt bera fram fyrirspurn til Gestgjafans um ákveðið hráefni, matreiðsluaðferð eða annað slíkt geturðu skrifað hana hér og sent okkur. Við reynum að finna svarið.