Spurt og svarað

Sæl Mig langar mikið til að prófa skessusúpu sem er á bls. 29 í 8. tbl.

Spurningin í heild:

Sæl Mig langar mikið til að prófa skessusúpu sem er á bls. 29 í 8. tbl. En í uppskriftinni er ekki tekið fram hvort stöngullinn eða blöðin eru notuð. Í greininni er líka talað um að nota megi hvönn. Spurningin er því: Hvort eru blöðin eða stöngullilnn notuð ? Það væri frábært að fá svar við þessu sem allra fyrst, því ég hef hugsað mér að gera þessa súpu í vikunni. Bestu kv. RM

Gestgjafinn svarar:

Ágæti áskrifandi. Hún Agnes notaði bara blöðin í súpuna og saxaði þau. Eins er með hvönnina. Það má nota stöngulinn ef fólk vill. Af honum kemur sterkara bragð sem sumum finnst rammt. En blöðin eru mjög bragðgóð.

Spurt og svarað

Ef þú vilt bera fram fyrirspurn til Gestgjafans um ákveðið hráefni, matreiðsluaðferð eða annað slíkt geturðu skrifað hana hér og sent okkur. Við reynum að finna svarið.

Spurt og svarað

 
 
 
 
 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Veflausnir