Spurt og svarað
Ef þú vilt bera fram fyrirspurn til Gestgjafans um ákveðið hráefni, matreiðsluaðferð eða annað slíkt geturðu skrifað hana hér og sent okkur. Við reynum að finna svarið.
Góðan dag, Ég sendi inn fyrirspurn í morgun þess efnis að ég hafi verið að gera vatnsdeigsbollur eftir uppskrift af vefnum ykkar í gær en þær féllu allar saman eftir að ég hafði opnað ofninn eftir rúmar 20mín. Þið sögðuð: "Uppskriftin okkar er svona: 50 g smjör, 2 dl vatn, 120 g hveiti og 3 meðalstór egg eða 4 lítil. Þú ert með helmingi meira smjör en okkar uppskrift segir til um..". Mig langaði bara góðfúslega að benda ykkur á að ef maður slær inn í leitarstrengnum á síðunni ykkar "Vatnsdeigsbollur" þá fær maður m.a. þessa uppskrift upp sem ég notaði: 200 ml vatn, 100 g smjör, 150 g hveiti, 1/2 tsk salt og 3-4 egg. Ég notaði því ekki helmingi meira smjör en uppskriftin ykkar segir til um heldur er hún einfaldlega vitlaus hérna inni á siðunni, spurning um að þið lagið það :-)
Ágæti áskrifandi. Ég bið þig margfaldlega afsökunar á þessu. Uppskriftirnar á vefnum eru allar upphaflega frá Nönnu Rögnvaldardóttur. Við höfum treyst því að þær séu allar réttar. Allar uppskriftirnar sem við höfum notað af vefnum eru réttar en við höfðum ekki prófað þessa uppskrift. Nanna hætti að vinna á Gestgjafanum fyrir mörugm árum en fyrirtækið keypti uppskriftabankann af henni. Allar uppskriftir sem birtast í Gestgjafanum eru því nýjar og flestar eftir Sigríði Björk Bragadóttur. Uppskriftin sem ég hélt að þú hefðir farið eftir birtist í nýjasta tölublaðnu og er uppskriftin því þessi sem ég sendi í svarinu. Við munum breyta uppskriftinni inni á vefnum þannig að hún stemmi við uppskriftina í blaðinu. Ég þakka þér kærlega fyrir þessa ábendingu.
Gangi þér vel,
ritstjórnin.
Ef þú vilt bera fram fyrirspurn til Gestgjafans um ákveðið hráefni, matreiðsluaðferð eða annað slíkt geturðu skrifað hana hér og sent okkur. Við reynum að finna svarið.