Spurt og svarað

Góðan dag, Ég prufaði að gera vatnsdeigsbollur í gær og notaði m.a. þessa uppskrift hér: 200 ml vatn, 100 g smjör, 150 g hveiti, 1/2 tsk salt, 3-4 egg (notaði 3 stór egg). Ég fylgdi uppskriftinni a

Spurningin í heild:

Góðan dag, Ég prufaði að gera vatnsdeigsbollur í gær og notaði m.a. þessa uppskrift hér: 200 ml vatn, 100 g smjör, 150 g hveiti, 1/2 tsk salt, 3-4 egg (notaði 3 stór egg). Ég fylgdi uppskriftinni alveg frá A-Ö en samt féllu þær saman. Ég passaði mig að opna ekki ofninn fyrr en eftir rúmar 20mín en um leið og ég gerði það til að athuga með eina að þá bara sigu þær allar niður. Hvað er ég að gera vitlaust ?

Gestgjafinn svarar:

Ágæti áskrifandi. Uppskriftin okkar er svona: 50 g smjör, 2 dl vatn, 120 g hveiti og 3 meðalstór egg eða 4 lítil. Þú ert með helmingi meira smjör en okkar uppskrift segir til um. Það getur skipt máli en líka hversu stórar þú hefur haft bollurnar. Ef þú hefur t.d. fengið bara 9 bollur út úr uppskriftinni þarf bökunartíminn að era 25-30 mínútur. Vonandi gengur vel næst.

Kær kveðja,

ritstjórnin.

Spurt og svarað

Ef þú vilt bera fram fyrirspurn til Gestgjafans um ákveðið hráefni, matreiðsluaðferð eða annað slíkt geturðu skrifað hana hér og sent okkur. Við reynum að finna svarið.

Spurt og svarað

 
 
 
 
 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Veflausnir