Spurt og svarað
Ef þú vilt bera fram fyrirspurn til Gestgjafans um ákveðið hráefni, matreiðsluaðferð eða annað slíkt geturðu skrifað hana hér og sent okkur. Við reynum að finna svarið.
Varðandi súrdeig ég á súrdeig sem ég er að halda á lífi og þarf að gefa hveiti, sykur og mjólk reglulega svo ég geti notað það áfram. Var að spá í hvort hægt sé að nota heilhveiti eða spelt til að halda því gangandi og þá líka aguave sýróp, hunang eða hrásykur? getið þið mælt með einhverri afbragðs brauðuppskrift sem inniheldur súrdeig? Er súrdeig eitthvað hollara fyrir mann en gerdeig? kv súrdeigsforeldri
Við höfum ekki vitað til að þyrfti annað en hveiti og vatn til að halda súrdeigi lifandi. Þú getur notað heilhveiti eða spelt og það skiptir ekki máli hvort þú notar agave síróp, hunang eða hrásykur. Súrdeig er auðmeltara en gerdeig en það eru aðallega þeir sem þola illa ger sem telja súrdeigið betra. Góð netsíða um súrdeig er: www.breadtopia.com
Hér er uppsrkrift að afbragðs bauðuppskrift sem inniheldur súrdeig:
Byggbrauð
Að kvöldi:
1 msk. súrdeig, fæst tilbúið í Brauðhúsinu í Grímsbæ en er líka hægt að búa til heima
350 g lífrænt byggmjöl (frá Móður jörð)
4 dl vatn, 35°C eða fingurvolgt
Blandið öllu saman í skál, leggið lok yfir og látið standa á hlýjum stað í 12-16 tíma.
Næsta morgun:
350 g speltmjöl
300 g sigtað speltmjöl
1 msk. möluð hvönn eða 1 dl þurrkuð fjallagrös, gróft mulin
1 msk. salt
3 dl vatn, 40-50°C
Bætið öllum hráefnunum út í kvöldblönduna og hnoðið vel saman. Breiðið dúk yfir og látið hefast í 40 mín. Skiptið deiginu í 2-3 brauð. Hnoðið þau aftur og setjið á ofnplötu. Penslið þau með vatni. Látið deigið lyftast yndir dúk í u.þ.b. 30 mín. Hitið ofninn í 230°C. Bakið brauðin í 40-50 mín. Fjallagrösin eru frá Íslenskri Hollustu og fást í heilsubúðum.
Gangi þér vel,
ritstjónin
Ef þú vilt bera fram fyrirspurn til Gestgjafans um ákveðið hráefni, matreiðsluaðferð eða annað slíkt geturðu skrifað hana hér og sent okkur. Við reynum að finna svarið.