Spurt og svarað

góðan dag,mig vantar uppskrift af ísostaköku sem var í blaði að mig minnir fyrir 2000.

Spurningin í heild:

góðan dag,mig vantar uppskrift af ísostaköku sem var í blaði að mig minnir fyrir 2000,utan á blaðinu er bl´grænt og mynd af rúllutertu,kv þorbjörg

Gestgjafinn svarar:

Sæl Þorbjörg. Hér eru uppskriftir úr blaði frá 2000 úr blaði með rúllubrauði á sem sem við vonum að nýtist þér. Ritstjórnin:

 

%afFROST OG FUNI

 

%ufINNBAKAÐUR ÍS

 

%inInnbakaður ís er algjört lostæti, hvort sem er sem eftirréttur eða á kaffiborðið og það er ekki eins erfitt að búa til innbakaðan ísrétt og gæti virst í fyrstu. Það eina er að það þarf að bera hann fram um leið og hann er tilbúinn og það er ekki hægt að geyma hann sem er ekki áhyggjuefni því það er næsta víst að hann klárast strax! Svo er hægt að búa til ný afbrigði endalaust. Það sem þarf er góður kökubotn af hvaða tagi sem er, 300-400 g ferskir, frosnir eða niðursoðnir ávextir (ávextir lagðir í vín eða líkjör eru alveg tilvaldir ef maður vill hafa meira við), 0,75-1 l ís og marengsmassi úr 5-6 eggjahvítum ásamt sykri. Aðferðin er einföld. Setjið kökubotninn á eldfast fat eða disk. Raðið ávöxtum eða berjum ofan á botninn. Setjið ísinn í sneiðum eða kúlum í kúf ofan á ávextina og látið hann ekki ná út fyrir þá. Jafnið marengsmassanum jafnt yfir allt saman og passið að hylja hliðar kökubotnsins alveg líka. Setjið fatið í 230°C heitan ofn og bakið í 2-3 mín. þannig að marengsinn nái aðeins að brúnast. Berið fram strax. Það er ágætt að stinga kökunni inn í frysti þegar búið er að setja ísinn ofan á og geyma þar til á að nota hana, búa svo til marengsmassann skömmu áður en á að nota hann og setja síðan yfir kökuna rétt áður en hún fer í ofninn þegar bera á hana fram. Það er tilvalið að dreypa víni eða líkjör yfir kökubotninn áður en ávöstunum er raðað ofan á en það er ekki nauðsynlegt. Hér á eftir fylgja þrjár ljúffengar útgáfur af frosti og funa en svo er um að gera að nota ímyndunaraflið og setja saman eigin útgáfur.

 

FROST OG FUNI MEÐ FERSKUM BERJUM

 

Marengsmassi:

 

5 eggjahvítur

3 dl flórsykur

 

Þeytið eggjahvíturnar í létta froðu og hrærið síðan flórsykrinum saman við í tveimur hlutum og þeytið áfram í 10 mín.

 

Botn:

 

2 egg

60 g sykur

60 g hveiti

3 msk. kartöflumjöl

1/2 tsk. lyftiduft

50 g suðusúkkulaði, saxað

 

Þeytið saman egg og sykur þar til það verður ljóst og létt. Blandið saman hveiti, kartöflumjöli og lyftidufti. Bætið súkkulaðinu saman við hveitiblönduna og hrærið svo öllu varlega saman við egGjamassann. Setjið deigið í smurt tertuform, 20-22 sm í þvermál, og bakið síðan við 200°C í 20-25 mín. eða þar til botninn er orðinn gullinn. Kælið á kökurist.

 

Fylling:

 

300-400 g fersk ber, t.d. jarðarber, bláber og brómber.

0,75 l vanilluís

 

Setjið botninn á eldfast fat eða disk. Tilvalið er að dreypa ögn af góðum líkjör á botninn ef vill. Raðið berjunum á botninn og síðan ís og marengsmassa á sama hátt og í uppskriftunum hér að framan. Bakið kökuna við 230°C í 2-3 mín. og berið fram strax. Gott er að bera meira af ferskum berjum með réttinum, ef vill.

 

Þorri mælir með: Sólberjalíkjörnum Crème de Cassis eða kokteilnum Kir.

 

FROST OG FUNI MEÐ FERSKJUM OG MÖNDLUM

 

Marengsmassi:

 

5 eggjahvítur

3 dl flórsykur

 

Þeytið eggjahvíturnar í létta froðu og hrærið síðan flórsykrinum saman við í tveimur hlutum og þeytið áfram í 10 mín.

 

Botn:

 

400 g marsipan

1 eggjahvíta

 

Rífið eða myljið marsipanið niður og hnoðið síðan eggjahvítunni saman við. Teiknið hring, 20 sm í þvermál, eftir disk eða móti á bökunarpappír, snúið honum síðan við og þrýstið deiginu í jafnan botn innan hringsins. Bakið á bökunarplötu við 200°C í 12 mín. Kælið á kökurist.

 

Fylling:

 

1 stór dós niðursoðnar ferskjur

0,75 l vanilluís

 

möndluflögur

 

Setjið marsipanbotninn á eldfast fat eða disk. Sigtið safann af ferskjunum og raðið þeim síðan á botninn. Setjið ísinn, beint úr frystinum, í kúf ofan á ferskjurnar og smyrjið marengsmassanum jafnt yfir allt saman. Stráið möndluflögum yfir marengsinn. Bakið í 230°C heitum ofni í 2-3 mín. Berið fram strax.

 

Þorri mælir með: Möndlulíkjör, t.d. Amaretto Disaronno.

 

FROST OG FUNI MEÐ KIRSUBERJUM

 

Marengsmassi:

 

5 eggjahvítur

3 dl flórsykur

 

Þeytið eggjahvíturnar í létta froðu og hrærið síðan flórsykrinum saman við í tveimur hlutum og þeytið áfram í 10 mín.

 

 

Botn:

 

2 egg

60 g sykur

60 g hveiti

3 msk. kartöflumjöl

1/2 tsk. lyftiduft

2 tsk. rifinn sítrónubörkur

2 tsk. kakó

 

Þeytið saman egg og sykur þar til það verður ljóst og létt. Blandið saman hveiti, kartöflumjöli, lyftidufti og sítrónuberki og hrærið varlega saman við eggjamassann. Setjið helminginn af deiginu í aðra skál og hrærið kakóinu saman við það. Setjið síðan deigið í smurt tertuform, 20-22 sm í þvermál, með skeið eða sleikju, ljósa og brúna sitt á hvað. Dragið síðan bökunarprjón í gegnum deigið til þess að fá marmaraáferð. Einnig má sleppa kakóinu alveg og vera með einlitan botn. Bakið við 200°C í 20 mín. eða þar til botninn er orðinn gullinbrúnn. Kælið á kökurist.

 

Fylling:

 

300-400 g kirsuber í vínlegi, eða desertkirsuber

0,75 l vanilluís

 

Setjið kaldan botninn á eldfast fat eða disk, ef notuð eru desertkirsuber má dreypa svolitlum kisuberjalíkjör yfir botninn. Látið safa eða vín renna af berjunum og raðið þeim síðan ofan á kökubotninn. Setjið síðan ísinn í kúf ofan á berin. Dreifið marengsmassanum jafnt yfir allt saman og passið að hylja hliðar kökubotnsins alveg líka. Bakið við 230°C í 2-3 mín., marengsinn á rétt að fá lit. Berið fram strax. Berið vínið eða berjasafann með sem sósu með réttinum. 

 

 

 

 

 

 

 

Spurt og svarað

Ef þú vilt bera fram fyrirspurn til Gestgjafans um ákveðið hráefni, matreiðsluaðferð eða annað slíkt geturðu skrifað hana hér og sent okkur. Við reynum að finna svarið.

Spurt og svarað

 
 
 
 
 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Veflausnir