Spurt og svarað

Góðan dag, Mig vantar svo uppskrift af marenstertu sem er m.a. með þeyttum rjóma, súkkulaðirúsínum og salthnet

Spurningin í heild:

Góðan dag, Nú veit ég ekki hvort þið hafið einhvertíman verið með svipaða tertu í Gestgjafanum en mig vantar svo uppskrift af marenstertu sem er m.a. með þeyttum rjóma, súkkulaðirúsínum og salthnetum (að ég held). Vona að þið kannist við lýsinguna en þetta er án efa besta terta sem ég hef smakkað, algjört nammi. Með fyrirfram þökk.

Gestgjafinn svarar:

Ágæti áskrifandi. Uppskrift að þessari tertu hefur birst í Gestgjafanum í ýmsum myndum. Grunnurinn er alltaf uppskrift að marens (sjá hér neðar í svarinu) og í rjómann er blandað súkkulaðirúsínum og salthnetum. Sumir hafa líka sett ávexti eða ber með líka og einhver bræddi súkkulaði og blandaði saman við rjómann. En hér er grunnuppskrift:

6 eggjahvítur

3 dl sykur

1/2 tsk. borðedik

Setjið eggin, sykurinn og edikið saman í skál og stífþeytið. Setjið blönduna í tvö bökunarform (u.þ.b. 22 sm hvort) og bakið í 15 - 20 mín. við 180°C eða 150°C með blæstri. Slökkvið þá á ofninum og látið marensinn kólna í ofninum.

2 pelar þeyttur rjómi

2 dl. súkkulaðirúsínur

1 dl. salthnetur

300 g jarðarber eða aðrir ávextir

Þeytið rjómann og blandið öllu saman. Sejið á milli marensbotnanna og berið fram. 

Gangi þér vel,

ritstjórnin

Spurt og svarað

Ef þú vilt bera fram fyrirspurn til Gestgjafans um ákveðið hráefni, matreiðsluaðferð eða annað slíkt geturðu skrifað hana hér og sent okkur. Við reynum að finna svarið.

Spurt og svarað

 
 
 
 
 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Veflausnir