Spurt og svarað
Ef þú vilt bera fram fyrirspurn til Gestgjafans um ákveðið hráefni, matreiðsluaðferð eða annað slíkt geturðu skrifað hana hér og sent okkur. Við reynum að finna svarið.
Góðan daginn fyrir nokrum árum sá ég uppskrift hjá ykku af saltfisksalat með apelsínum í þetta hefur sennilega verið fyrir 4.árum kveðja Guðbjörg
Sæl Guðbjörg. Hér er uppskrkftin sem þú baðst um. Póstkerfið hjá okkur hefur verið í einhverju lamasessi. Ég vona að þessi sending gangi og kannski er hún komin oft inn. Kveðja, ritstjórni.
Saltfiskssalat
fyrir 6-10
200 g saltfiskur eða smálúða
1 blaðlaukur, sneiddur
1 dl ólífuolía
4 msk. sérrí- eða estragonedik
2 tsk. salt
1 tsk. grófmalaður, svartur pipar
3 hvítlauksrif, söxuð
2 rauðlaukar, skornir í þunnar sneiðar
4 appelsínur, skrældar og skornar í þunnar sneiðar
½ dl svartar ólífur
½ dl grænar ólífur
steinselja, söxuð
Roð- og beinhreinsið saltfiskinn og skerið hann í litla bita. Blandið honum saman við blaðlaukinn. Hrærið saman olíu, edik, salt, pipar, og hvítlauk og hellið helmingnum af blöndunni yfir fiskinn. Geymið hann í kæli yfir nótt. Blandið lauk- og appelsínusneiðum saman við afganginn af olíublöndunni og látið standa í 1-2 klst. Raðið nú öllu á fat og skreytið með ólífum og steinselju.
Ef þú vilt bera fram fyrirspurn til Gestgjafans um ákveðið hráefni, matreiðsluaðferð eða annað slíkt geturðu skrifað hana hér og sent okkur. Við reynum að finna svarið.